Birgitta ósátt við sóttvarnaaðgerðir: „Hvað er í gangi, hvaða rugl er þetta?“

Birgitta Jónsdóttir, skáld og fyrrverandi alþingismaður, er ósátt við atburði síðastliðna daga þegar kemur að sóttvarnaaðgerðum en hún beinir spjótum sínum sérstaklega að útspili yfirvalda þegar kemur að sóttkvíarhótelum í viðtali í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 í dag.

„Bara allt ruglið í kringum síðasta mánuð, hvað er í gangi, hvaða rugl er þetta? Það vissu allir að lögin myndu ekki halda og það er verið að láta aumingja sóttvarnalækni vera andlit fyrir þetta klúður,“ segir Birgitta meðal annars en hún segir stjórnvöld vera ósamstíga og óskýr.

Að sögn Birgittu hefur þjóðin staðið sig vel í sóttvörnum en hún segir ákvarðanir stjórnvalda grafa undan þeirri samstöðu. Þar vísar hún til þess að stjórnmálamenn hefðu strax átt að stíga fram og biðjast afsökunar fyrir óskýrleika. „En í staðinn svarar meira að segja Svandís Svavarsdóttir ekki spurningum fjölmiðla,“ segir Birgitta og virðist ekki par sátt við heilbrigðisráðherra.

Vill ekki fara fram í haust

Í viðtalinu ræðir Birgitta einnig um stjórnmálaferilinn og hvort hún hafi íhugað að snúa aftur en hún ákvað fyrir nokkru að stíga til hliðar og ná áttum. Aðspurð um endurkomu í stjórnmálum segist Birgitta ekki vera á þeim stað og að hún hafi ekki áhuga á að fara fram í kringum kosningarnar í haust. „Ég held að næsta kjörtímabil verði stutt og skrýtið,“ segir hún.

„Ég er heppin með að skynja hvenær rétti tíminn er til að gera hluti og það er eitthvað sem maður getur þróað og þroskað með sér. Maður þarf að treysta innsæinu og þora að gera hluti sem aðrir segja að sé ekki hægt. Það er það sem mótiverar mig mest.“

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér.