Birgitta Jónsdóttir segir að álagið sem hafi skapast eftir úlfúðina innan Pírata sem leiddi til þess að hún hafi hætt öllum störfum fyrir flokkinn hafi verið ein ástæða þess að hún missti heilsuna.
„En ég var veik fyrir af því að ég hafði lagt of mikið á mig.“
Hrakar heilsunni hjá þér strax eftir þessu miklu átök?
„Það voru átök miklu fyrr, átök allan tímann. Ég var alltaf að svara fyrir fólk sem ég þekkti ekki og það versta sem kom fyrir þennan flokk var að verða svona vinsæll, því þá færðu alls konar fólk inn í grasrótina sem er ekki í neinum tengslum við grunninn, hvaðan við sprettum. Það fara að skapast alls konar kjaftasögur og svo fer fólk að setja á mig valdatitil. Ég var vænd um valdboð sem var aldrei til staðar,“ segir Birgitta í helgarviðtali Fréttablaðsins.
Birgitta einangraði sjálfa sig um tíma. Konan sem hafði verið daglega í fréttum um árabil hreinlega hvarf af sjónarsviðinu.
„Ég hætti að geta farið út úr húsi. Ég lokaði mig inni og leið eins og að allir sæju einhverja ofbeldismanneskju í mér. Ég hef alltaf haft lítið sjálfsmat, ég hef alltaf átt erfitt með að taka við hinu jákvæða ef fólk segir eitthvað gott um mig, ég hlusta frekar á það neikvæða sem sagt er um mig og verð hissa ef einhver segir eitthvað fallegt um mig.“