Birgitta Líf Björnsdóttir, eigandi Bankastræti Club og markaðsstjóri World Class, hefur tjáð sig um hrottalega árás sem átti sér stað á skemmtistað hennar í gærkvöldi.
Þrír voru fluttir á slysadeild eftir hnífsstungur á staðnum í gærkvöldi og var lögregla, sérsveit ríkislögreglustjóra og sjúkralið með mikinn viðbúnað á vettvangi. Fréttablaðið greindi frá því að menn, sem huldu höfuð sitt, hafi farið inn á staðinn, ráðist á mennina og síðan flúið á hlaupum og komist undan á bíl.
Birgitta tjáði sig um árásina á Instagram-síðu sinni í nótt og segist þakklát fyrir viðbrögð þeirra sem komu að atburðarásinni í gærkvöldi; starfsfólki, gestum, lögreglu og sjúkraflutningamönnum.
„Í kvöld mætti stór hópur manna í miðbæ Reykjavíkur í leit að ákveðnum aðilum sem þeir fundu inni á Bankastræti og réðust á. Viðkomandi slösuðust alvarlega og voru fluttir á slysadeild en eru ekki í lífshættu,“ sagði Birgitta í Story hjá sér á Instagram.
„Við hjá Bankastræti umberum ekki ofbeldi af neinu tagi og leggjum mikið upp úr öryggi gesta okkar og þjálfun starfsfólks. Þökkum guði fyrir að ekki fór verr. Ofbeldi á hvergi heima.“