Birgitta Líf biðst afsökunar á „kínaaugum“: „Átti ekki að vera meint sem neitt grín“

Segja má að netheimar hafi logað eftir myndband fór í dreifingu á netheimum af áhrifavaldinum og athafnakonunni Birgittu Líf Björnsdóttur gera svokölluð „kínaaugu“ sem felst í því að toga í hliðarnar á augunum með þeim tilgangi að láta augun minna á útlit einstaklings af asískum uppruna.

Myndbandið virðist vera tekið á samskiptaforrit og sýnir hana dansa við lag. Virðist sem „augun“ séu hluti af dansinum. Myndbandið fór í dreifingu á Twitter:

Birgitta hefur nú skrifað athugasemd við myndbandið sem birt var á TikTok en þar segir hún þetta hafa verið gert í hugsunarleysi. „Mér þykir ótrúlega leiðinlegt hvernig ég túlkaði þennan texta sem ég var að dansa og syngja við en það átti ekki að vera meint sem neitt grín,“ segir hún.

„Það var engin dýpri merking á bakvið þetta og ég biðst afsökunar á að hafa sært með hugsunarleysi mínu. Ég lifi og læri. Ást til allra.“