Birgitta er bláfátæk: Seldi íbúðina og fær 220 þúsund á mánuði

Birgitta Jóns­dóttir, fyrrum þing­maður og stofnandi pírata, lifir undir fá­tæktar­mörkum.

„Ég er að klára síðasta mánuðinn minn hjá VIRK og fæ um 220.000 krónur í styrk á mánuði. Ég seldi í­búðina og fékk milli­gjöf sem ég hef notað til að brúa bilið. Ég er samt ekki að svelta,“ segir Birgitta í helgar­við­tali við Frétta­blaðið.

Hún segist aldrei hafa verið gefin fyrir efnis­leg gæði. Hún hafi aldrei átt mikla peninga en eftir að hún steig burt af sjónar­sviðinu fyrir nokkrum árum hafi hún eignast mikinn tíma sem hún hafi reynt að nota vel.