Birgir vill að kristninni verði gefið meira vægi í grunn­skólum

„Ég tel eðli­­legt og æski­­legt að kristin­­fræði sé kynnt æsku þjóðarinnar í meira mæli en gert er,“ segir Birgir Þórarins­son, þing­maður Mið­flokksins, í sam­tali við Frétta­blaðið í dag.

Frum­varp Mið­flokksins og tveggja þing­manna Sjálf­stæðis­flokks um að kristni­­fræðsla verði tekin upp á nýjan leik í grunn­­skólum var rædd á Al­þingi í gær.

Bent er á það í frétt Frétta­blaðsins að kennslu í trúar­bragða­fræði hafi verið breytt árið 2007 eftir á­tölur frá nefnd Evrópu­ráðsins gegn kyn­þátta­­for­­dómum og um­­burðar­­leysi. Birgir telur engu að síður eðli­legt að kristin­fræði sé gert hærra undir höfði en gert er.

„Saga landsins er sam­ofin kristninni og því ætti hún að njóta sér­­­stöðu innan veggja grunn­­skólanna,“ segir hann en frum­varpið gerir ekki ráð fyrir að kennslu annarra trúar­bragða verði hætt, einungis að kristninni verði gefið meira vægi. „Kristin­fræði­kennsla er ekki trúar­­leg boðun heldur fræði­­leg kennsla,“ segir hann.

Í Frétta­blaðinu er einnig rætt við Ingu Auð­björgu K. Straum­land, for­mann Sið­menntar, sem segir frum­varpið vera tíma­skekkju.

„Kristni eru trúar­­brögð og falla þar af leiðandi undir trúar­bragða­­fræði­­kennslu. Þar að auki er kristni nú þegar gert hærra undir höfði en öðrum trúar­­brögðum í skólunum,“ segir hún meðal annars.