Birgir var á göngu­stíg þegar ó­kunnug kona hrópaði skyndi­lega á hann

„Mér fannst þessi hegðun ein­hvern veginn bæði fyndin, kjána­leg, sorg­leg og pínu dóna­leg,“ segir Birgir Örn Guð­jóns­son lög­reglu­maður, betur þekktur sem Biggi lögga.

Birgir lýsir þarna at­viki sem hann varð fyrir á dögunum þegar hann var úti að ganga á göngu­stíg þegar kona á besta aldri gekk á móti honum.

Rak út höndina og hrópaði

„Ég er bara í mínum þanka­gangi og held minni línu þegar konan allt í einu rekur út hendina í átt að mér og öskrar „tveir metrar!“

Birgir skrifar at­hyglis­verðan pistil um málið sem hann birti á Face­book-síðu sinni í morgun. Þar skrifar hann hug­leiðingar um CO­VID-19 far­aldurinn og bendir á að fólk sé skiljan­lega orðið þreytt á á­standinu. Sólin sé auk þess farin að hækka á lofti, fá smit í gangi og flestir séu farnir að þrá eðli­legt líf á nýjan leik.

Birgir ræðir svo at­vikið á göngu­stígnum og veltir fyrir sér þanka­gangi um­ræddrar konu.

„Ef hún var svona hrædd þá væri kannski ráð­lagt fyrir hana að ganga bara ekki á göngu­stíg þar sem hún mun pott­þétt mæta fullt af svona stór­hættu­legu fólki eins og mér. Hún gat líka bara sjálf lagt á sig krók fram­hjá mér.“

Eins og óöruggir kettir

Birgir segir það pínu skondið hvernig á­standið hefur breytt ýmsum venjum okkar. Í staðinn fyrir að mætast úti á götu með brosi á vör og ósk um góðan dag þá mætumst við eins og ó­öruggir kettir, „hrædd um að ganga í gegnum ský af sýklum sem eru sveittir að mæla út þessa tvo metra og taka sér ból­festu í öllu lifandi innan síns yfir­ráða­svæðis.“

Birgir veltir svo fyrir sér tveggja metra reglunni en deildar meiningar sé um hvort þetta séu reglur eða bara al­menn við­mið.

„Það er kannski ekkert skrýtið að fólk öskri „tveir metrar“ í göngu­túrum. En sama hvað þá hljótum við mörg að finna að þetta er ekki sam­fé­lagið sem við viljum til fram­búðar. Jafn­vel þótt sótt­varna­læknir vilji það kannski. Hann er jú sótt­varna­læknir, gleymum því ekki. Hann hefur það eina starf að vinna í sótt­vörnum. Hann kemur með til­lögur og ráð­leggingar inn í fram­tíðina en það er svo okkar sem sam­fé­lag að vinna úr því með teknu til­liti til allra annara þátta. Við erum sam­fé­lag fólks, ekki véla.“

Birgir telur að margt muni breytast hjá okkur til fram­búðar og gott sé að læra af reynslunni. Hann telur til dæmis að það verði ekkert endi­lega við­tekin venja lengur að heilsa öllum með handa­bandi. Það sé í raun frekar kjána­legt að gera það á annað borð ef spáð er í það.

„Japanir eru löngu búnir að fatta það. Ég held samt að við munum halda á­fram að knúsa og kyssa þá sem við þekkjum. Við þurfum meira á því að halda. Ást og um­hyggja, nánd og snerting er okkur nauð­syn­leg. Ég vil ekki vera í sam­fé­lagi þar sem ég þarf að nálgast allar lifandi verur eins og þær séu hold­sveikar. Það stríðir gegn okkar eðli um nánd og náunga­kær­leik,“ segir hann meðal annars.

Eftir vel heppnað tónleikaferðalag rokkstjörnu covid19 tríósins þá er allt í einu farið að heyrast einstaka púú úr...

Posted by Birgir Örn Guðjónsson on Miðvikudagur, 6. maí 2020