Birgir skammar Frosta: „Ó­­hróðurinn liggur eftir eins og tyggjók­­lessa“

„Með ó­­sannindi og hálf­­sann­­leik að vopni er reynt að sá efa­­semda­­fræjum í huga fólks,“ segir Birgir Hrafns­­son, gítar­­leikari og á­huga­­maður um á­byrga um­­ræðu.

Birgir skrifar grein í Frétta­blaðið í dag þar sem hann lætur Frosta Sigur­jóns­­son, fyrr­verandi þing­mann Fram­­sóknar­­flokksins, fá það ó­­þvegið. Frosti hefur verið á­berandi í gagn­rýni sinni á heil­brigðis­yfir­­völd undan­farnar vikur vegna Co­vid-19 far­aldursins.

„Það vakti eftir­­­tekt þegar fyrrum al­þingis­­maður birti pistil á fés­­bók sinni, þar sem hann lýsti al­­mennum efa­­semdum um að­­gerðir og á­kvarðanir sótt­varna­­læknis og annarra ís­­lenskra yfir­­valda í tengslum við CO­VID-19 veiruna. Hann bætti um betur og í við­tali í út­­varps­þætti nokkrum hélt hann því fram að „út­­lendingum frá hættu­­svæðum hefði verið hleypt ó­­skimuðum inn í landið til þess að koma smiti inn í sam­­fé­lagið“ og virtist þar með ekki hafa fylgst með frétta­flutningi af skíða­­glöðum Ís­­lendingum í Ölpunum.“

Þó Birgir nafn­­greinir Frosta ekki í pistlinum er aug­­ljóst um hvern er verið að tala. Hann minnist einnig á opið bréf þing­­mannsins fyrr­verandi til Katrínar Jakobs­dóttur for­­sætis­ráð­herra, þar sem Frosti sagði meðal annars:

„Þú ert vonandi mjög hugsi, enda hvílir á­byrgðin nú á þínum herðum og ríkis­­stjórnarinnar. Það er ekki hægt að vísa á­byrgð á sótt­varna­­lækni, nú þegar öllum má vera ljóst að að­­ferð hans er röng og getur leitt til stór­tjóns.“

Birgir segir að ofan­­­greind at­burða­rás lýsi þekktu á­róðurs­bragði.

„Með ó­­sannindi og hálf­­sann­­leik að vopni er reynt að sá efa­­semda­­fræjum í huga fólks. Þrátt fyrir að margir láti sér fátt um finnast (sem betur fer), liggur ó­­hróðurinn eftir eins og tyggjók­­lessa, sem erfitt getur reynst að hreinsa upp að fullu, eins og jafnan er um tyggjók­­lessur.“

Birgir segir að bragðið hafi í raun heppnast því yfir­­völd hefðu þurft að sverja á­burðinn af sér.

„Sjaldan er ein báran stök og þing­­flokkur stjórn­­mála­­flokks nokkurs birti heil­­síðu aug­­lýsingu af svipuðum (eða sama?) meiði í dag­blöðum laugar­­daginn 21. mars. Þrátt fyrir öllu sett­­legri tón, fer ekki á milli mála að boð­­skapurinn er sama eðlis og megum við lík­­lega búast við meiru af slíku á næstunni. Á ó­­vissu­­tímum sem þessum ræður úr­­slitum að allir leggist á eitt. Til við­bótar við dyggðir eins og sam­heldni, yfir­­vegun, sann­­leiks­ást og náunga­kær­­leik, er einnig mikil­­vægt að „mæla þarft eða þegja“.