„Tilefni þessarar greinar er skipulögð árás á mannorð og ævistarf Þórarins Tyrfingssonar. Þess manns, sem tugþúsundir Íslendinga bera þakkarhug til fyrir að bjarga þeim og ástvinum þeirra úr angistardíki alkóhólistans.“
Þetta segir Birgir Dýrfjörð, rafvirkjameistari og fyrrverandi varaþingmaður, í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun.
„Árásin var tímasett þannig, að Þórarni var ekki fært að bera af sér sakir fyrir aðalfund SÁÁ, sem var á þriðjudegi. Á sunnudegi fyrir fundinn birti Morgunblaðið heilsíðu viðtal með níði um Þórarin. Daginn fyrir aðalfund var í hádegisfréttum í Ríkisútvarpi og Bylgjunni viðtal við lækni og sálfræðing SÁÁ.“
Birgir segir að þar hafi verið ausið persónulegu níði yfir Þórarin og fréttamenn hafi hundsað þá sæmdarskildu að leita andsvara þess sem rægður var.
Birgir fer hlýjum orðum um Þórarin og rifjar upp í grein sinni þær breytingar sem hann leiddi samtökin í gegnum.
„Fyrir hjálp Þórarins Tyrfingssonar hafa meir en tuttugu þúsund alkóhólistar og tugþúsundir aðstandenda þeirra náð að breyta lífi sínu til hins betra,“ segir hann og bætir við að Þórarinn hafi tekið vel á móti öllum fíklum og haft afar næman skilning á hvað þyrfti til að ná árangri.
„Hann gaf óspart af hvíldartíma sínum og fjölskyldu sinnar til að hjálpa veikum fíklum. Þúsundir alkóhólista og tugþúsundir vandamanna bera hlýjan þakkarhug til Þórarins Tyrfingssonar fyrir, að hafa leitt þau fyrstu skrefin til heilbrigðara lífs,“ segir Birgir og heldur áfram:
„Engum er meira að þakka en Þórarni Tyrfingssyni, hvað stór hluti Íslendinga hefur náð að breyta lífi sínu til hins betra. Rógberar, sem nú níða arf hans, og æru, og ævistarf. Fá því aldrei breytt.“
Birgir segir að sú mikla þakkarskuld hafi „æpandi rógberum og hælbítum“ sem vilja öll yfirráð í SÁÁ orðið ofraun.
„Þeir urðu „Hersing“, sem iðkar persónuníð og lygar um Þórarinn. Til að sanna níðið birtu þeir lista með nafnlausum undirskriftum!! Í stað nafns var skrifað „Starfsmaður ,sem þorir ekki að koma fram undir nafni af ótta við hefnd Þórarins“ Nafnalisti án nafna var enn eitt svindl stjórnenda SÁÁ. Hælbítarnir fengu heilsíðu í Mogganum. Viðtöl í hádegisfréttum Ruv og Bylgjunnar. Þar féllu ummæli um Þórarinn Tyrfingsson, sem voru svívirðileg ósannindi og mannorðsníð. Þar var sagt í eyru þjóðarinnar: „Þórarinn, hann vinnur markvisst að því, að eyðileggja SÁÁ“.“
Birgir er ekki sáttur við þetta og segir:
„Þegar Þórarinn sá liðið, sem að honum sótti, gat hann sagt eins og Sesar þegar hann leit hnífastungumenn sína: „Þú líka Brútus.“ Ég mun síðar lýsa „Hersingunni“ og athöfnum hennar og aðför, að tilveru SÁÁ.“