Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var um helgina við hjálparstörf í Lviv borg í Úkraínu. Hann segir ástandið þar í landi átakanlegt en hann fann vel fyrir flugskeytaárás Rússa.
Birgir ræðir málið við Vísi og segist ekki vera þar á vegum Alþingis, heldur með vini sínum frá Kanada sem rekur alþjóðlegu hjálparsamtökin One Free World International.
Birgir segist hafa heimsótt herspítala. Þar hitti hann unga stráka, yfir 19-20 ára gamla sem voru mjög illa slasaðir, búnir að missa útlimi. „Þegar við vorum á herspítalanum í dag þá fóru loftvarnaflauturnar af stað og við þurftum að fara niður í kjallara á spítalanum þar sem er svona loftvarnarbyrgi. Það þurfti að slökkva öll ljós á spítalanum og maður verður mjög var við það hvað þetta er nálægt fólki hér,“ segir Birgir við Vísi.
Birgir er kominn yfir landamærin til Póllands. Hann segir gaman að sjá hvað Pólverjarnir séu duglegir við að leggja flóttafólki lið.