Birgir Örn Guðjónsson, lögreglumaður og Hafnfirðingur, vandar Reykjavíkurborg ekki kveðjurnar og segir hana beita undirförulli leið til að koma mengandi stóriðju í bakgarð Hafnarfirðinga.
Birgir skrifaði færslu í íbúahóp Vallarbúa á Facebook þar sem hann deildi nýlegri umfjöllun DV um málefni Malbikunarstöðvarinnar Höfða. Malbikunarstöðin er sem kunnugt er í eigu Borgarsjóðs Reykjavíkur og Aflvaka en viðræður um flutning stöðvarinnar upp á iðnaðarsvæði við Álfhellu í Hafnarfirði eru langt komnar.
Til stendur að reisa íbúðabyggð við Elliðaárvogi og af þeim sökum þarf malbikunarstöðin að víkja. Birgir Örn, eða Biggi lögga eins og hann er gjarnan kallaður, er varabæjarfulltrúi Bæjarlistans í Hafnarfirði og honum líst ekki á blikuna fyrir Hafnfirðinga.
„Vildi bara vekja athygli á þessari undirförlu leið Reykjavíkurborgar í að koma mengandi stóriðju í OKKAR bakgarð. Borgin hafði í lengri tíma leitað eftir leyfi til að koma með þessa malbikunarstöð á þetta svæði en fengið neikvæð svör frá Hafnarfirði. Nú hafa þeir fundið bakdyr og eru að lauma sér inn um þær með því að kaupa lóð af annarri malbikunarstöð, Munch, og setja þar í staðinn enn stærri stöð,“ segir Birgir Örn í færslunni.
Birgir, sem býr sjálfur á Völlunum, segir að á sínum tíma hafi hann og margir aðrir verið ósáttir við það þegar Munch fékk leyfi fyrir stöðinni á sínum tíma. Var meðal annars blásið til íbúafundar vegna málsins.
„Þar var gert lítið úr þessum áhyggjum okkar og talað um að þetta væri lítil færanleg stöð sem ekkert mál væri að taka niður og svo framvegis. Það var lítið hlustað á ótta okkar við að þessi þróun væri ekki jákvæð í jaðri eins mest vaxandi hverfis höfuðborgarsvæðisins. Var álverið m.a. notað sem skálkaskjól, þ.e. að það mætti svo lítið annað vera þarna hvort sem er,“ segir Birgir og bætir við að nú sé nákvæmlega það sem menn óttuðust að rætast.
„Það á að setja upp enn stærri reykspúandi malbikunarstöð sem á að framleiða malbik sem flutt verður í lestuðum bílum í gegnum Hafnarfjörð svo hægt verði að malbika Reykjavíkurborg. Þetta eru alls ekki boðleg vinnubrögð hjá borginni og þau ættu að sjá sóma sinn í að hafa sína mengandi iðju innan síns svæðis og alls ekki í garðinum hjá íbúum næsta sveitarfélags.“
Fjölmargir íbúar hafa tekið undir þetta og kallað eftir svörum frá Hafnarfjarðarbæ. Spurt er hvort ekki þurfi að fara með málið í grenndarkynningu en Birgir Örn segir að borgin sé að smeygja sér í gegnum leyfið sem Munch fékk á sínum tíma. „Þetta er virkilega skítlegt,“ segir hann.
Ef marka má umræður í grúppunni munu íbúar berjast gegn þessum áformum um flutning malbikunarstöðvarinnar til Hafnarfjarðar í næsta nágrenni við fjölmenna íbúabyggð. „Þetta bara má ekki gerast,“ segir einn á meðan annar kallar eftir skýrum svörum frá bænum svo hægt sé að bregðast við í tíma.