„Samfélagið er halt. Þegar við einblínum svona mikið á meiðslin á einum útlimi samfélagsins er hætta á áframhaldandi stoðkerfisvandamálum þó útlimurinn læknist. Ég hef sjálfur miklar áhyggjur af þeim vandamálum.“
Svona hefst pistill eftr lögreglumanninn Birgi Örn Guðjónsson sem hann birti á Facebook-síðu sinni fyrr í dag. Birgir hefur að undanförnu sinnt starfi sem snýr að því að skoða hvernig lögreglan á höfuðborgarsvæðinu getur á sem bestan og skilvirkastan máta komið að forvörnum.
Birgir segir það vitað mál að einn af fylgikvillum COVID-19 sé ákveðinn efnahagsvandi. Tilefni pistilsins er þó ekki efnahagsvandi heldur óttast Birgir að við séum ekki með puttann jafn mikið á félagslegu fylgikvillunum.
„Hvaða áhrif hefur þetta ástand t.d. á börnin okkar og ungmennin? Aukinn ótti, kvíði, streita. Þar á ofan er jafnvel enginn skóli, ekkert félagsstarf, engar íþróttir og minna taumhald. Við þetta ástand eykst hætta á ákveðinni áhættuhegðun og jafnvel sjálflækningu við slæmri líðan með hugbreytandi efnum. Við verðum að vera vakandi fyrir þessari hættu. Að sofna núna eða einblína einungis á meiðslin á einum útlimi samfélagsins getur haft slæmar og hættulegar afleiðingar á restina af líkamanum.“
Birgir Örn talar einnig um heimilisofbeldi og auknar líkur á því nú þegar fólk er í auknum mæli heima. Fyrir suma sé heimilið nefnilega ekki griðastaður, heldur hættulegasti og mest ógnvekjandi staður sem til er.
„Nú eru ytri aðstæður þannig að fólk er meira heima við og er jafnvel knúið til að vera þar í sóttkví eða til að vinna. Fyrir suma, oftar konur og börn, getur slík staða verið ólýsanleg martröð. Að vera lokaður inni í búri með sínum mesta ógnvaldi. Slíkt getur haft miklar og jafnvel óafturkræfar afleiðingar. Sérstaklega á börnin sem verða fyrir eða verða vitni af heimilisofbeldi,“ segir Birgir sem biðlar til fólks að láta vita ef grunur vaknar um ofbeldi af einhverju tagi.
„Eins og staðan er getum við lítið annað en biðlað til okkar sem samfélags að hugsa hvort um annað. Ef við höfum grun um heimilisofbeldi eða vanrækslu eigum við að láta vita í 112. Núna er aukin hætta og það er samfélagsleg skylda okkar að grípa inn í.“
Birgir bendir á að Kvennaathvarfið sé opið og tilbúið að aðstoða þær konur sem þurfa. Hann bendir einnig á Bjarkahlíð sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis og á Akureyri er samskonar úrræði sem heitir Bjarmahlíð. Birgir endar pistilinn á þessum orðum:
„Ekki bíða með að hafa samband. Við erum öll almannavarnir.“