„Já, það er röð við Partýbúðina. Og hvað með það? Það standa allir (nema 10 manns) í röð fyrir utan í fersku lofti með gott bil á milli og stór hluti af þeim eru krakkar,“ segir Birgir Örn Guðjónsson lögreglumaður.
Birgir Örn, oft kallaður Biggi lögga, gerir þar frétt Fréttablaðsins í morgun að umtalsefni en þar var greint frá því að í annað sinn á skömmum tíma hefði myndast röð fyrir utan búðina. Færri komust að en vildu þegar búðin opnaði í morgun enda tíu manna samkomubann komið í gildi.
Þá þarf vart að taka það fram að Hrekkjavakan er í dag og því eðlilegt að leið margra liggi í þessa vinsælu verslun í Skeifunni.
Einhverjir sáu ástæðu til að gagnrýna þá gesti sem lögðu leið sína í búðina. Hárgreiðslumaðurinn Friðrik Jónsson deildi til að mynda myndbandi þar sem hann virti fyrir sér röðina og benti á að ekki væru tveir metrar á milli fólks. „Svo finnst okkur skrítið að ástandið versni bara í samfélaginu.“
Birgir Örn segir að flestir þeirra sem lögðu leið sína í Partýbúðina séu börn sem eru að reyna að finna tilbreytingu og gleði í þessu annars niðurdrepandi árferði.
„Ég tek bara ofan fyrir foredrunum sem lögðu það á sig að fara með þeim að bíða í þessari röð. Síðan skulum við hin sem nenntum ekki eða erum með heimaföndrað diplóma í veiruvarnarlöggæslu bara halda áfram að hugsa um okkar eigin sóttvarnir. Þar gerum við lang mest gagn.“