„Hann var í verri málum, með aukna vanlíðan og dílerinn hans seldi auka skammt. Hvað er unnið?“
Þessari spurningu varpar Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, í athyglisverðri færslu á Facebook-síðu sinni. Töluvert hefur verið rætt um afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefna að undanförnu en frumvarp Svandísar Svavavarsdóttur heilbrigðisráðherra gerir einmitt ráð fyrir því.
Birgir Örn styður frumvarpið ólíkt mörgum kollegum sínum, meðal annars lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra. Birgir lýsir í færslu sinni átakanlegri sögu ungs manns sem var tekinn af lögreglu með neysluskammt af fíkniefnum á sér.
„Fyrir nokkru var einstaklingur sem er mjög langt leiddur í fíkn stöðvaður af lögreglunni og á honum fannst skammtur af ákveðnu ólöglegu vímuefni. Til þess að redda sér þessu efni hafði þessi einstaklingur þurft að selja sig eldri manni. Núna var hann búinn að missa efnið og kominn með enn eina sekt á bakið sem hann mun aldrei geta borgað. Hvað gerir hann þá? Að sjálfsögðu seldi hann sig aftur til að geta keypt annan skammt. Hann var í verri málum, með aukna vanlíðan og dílerinn hans seldi auka skammt. Hvað er unnið?“
Birgir tekur undir það að afglæpavæðing sé ekki hin eina og sanna lausn á vandanum. Það hafi heldur enginn haldið því fram en um sé að ræða skref í áttina að mannúðlegri og lausnamiðaðri nálgun.
„Ég bið um það eitt að fólk taki tilfinningarnar aðeins út úr menginu og kynni sér málefnið og þær lausnir sem flestar vestrænar þjóðir eru að skoða og komnar mis langt í að innleiða.“
Birgir Örn segist hafa sökkt sér ofan í málaflokkinn enda fundist hann þurfa að skilja hann betur. Við það hafi skoðun hans farið að breytast hægt og rólega.
„Ég tel mig vera góðan í mínu fjölbreytta starfi sem lögreglumaður og ég framfylgi að sjálfsögðu þeim lögum sem löggjafinn setur. Líka þeim sem snúa að ólöglegum vímuefnum. Hjarta mitt brennur bara fyrir forvörnum í öllum skilningi þess hugtaks. Ég vil að lögreglan komi að þeirri vinnu að gera samfélagið betra og öruggara fyrir alla og ég tel að hún þurfi að vera opin fyrir nýjum og breyttum áherslum í takt við aukna reynslu og þekkingu. Ég hef fengið það á mig að þetta sér bara „popúliskt“ tal hjá mér. Það er svo fáránlega langt frá sannleikanum.“
Birgir segist ekki ætla að fara nánar út í það en hann tekur fram að hann afstaða hans í málaflokknum hafi lokað dyrum fyrir honum og gert suma hluti erfiðari. „Mér finnst það leitt en ég er svo sannfærður um mikilvægi málefnisins að ég trúi að það sé þess virði þegar upp er staðið.“
Það virðast vera allskonar misskilningur og rangtúlkanir í gangi þegar kemur að umræðunni um afglæpavæðingu þeirra...
Posted by Birgir Örn Guðjónsson on Þriðjudagur, 11. maí 2021