Birgir læknir ó­sáttur: Skelfi­legt að geta ekki hitt ást­vini sína – Sendi bréf en fékk ekki svar

„Bann við því að til dæmis Alz­heimer-sjúk­lingar með dvínandi minni fái að sjá ættingja sína sem þeir enn þekkja á sér enga hlið­stæðu er­lendis og er nánast ó­mann­úð­legt. Ill­mögu­legt er að sjá hvað það hjálpar við veirufar­aldur.“

Þetta segir Birgir Guð­jóns­son læknir í að­sendri grein í Frétta­blaðinu í dag.

Þar skrifar Birgir um CO­VID-19 og þá sér­stak­lega heim­sóknar­bann vegna veirunnar sem hefur meðal annars tekið gildi á Land­spítalanum og hjúkrunar- og dvalar­heimilum. Gildir bannið á meðan neyðar­stig al­manna­varna, sem sett var á síðast­liðinn föstu­dag, er í gildi.

Ég tel að að­gerðir Land­læknis­em­bættisins og yfir­valda hafi að mörgu leyti verið góðar en sumt mót­sagna­kennt. Nokkrum sinnum var sagt að þegar smit sannaðist innan­lands yrði sett á sam­komu­bann. Nú hafa nokkur smit verið stað­fest og enn er ó­ljóst um sam­komu­bann sem vissu­lega er af­drifa­rík á­kvörðun,“ segir Birgir sem fjallar síðan um um­rætt heim­sóknar­bann.

„Ég hef hvergi séð getið um slíkt er­lendis. Á fundi Cor­ona-veiru­nefndar á sunnu­dag 8. mars hélt Pétur Magnús­son for­stjóri Hrafnistu því fram að mikil á­nægja væri hjá að­stand­endum með að þurfa ekki að hitta ættingja sína a.m.k. á Hrafnistu og kallaði það „vel­ferð“. Hann stakk upp á tölvu­sam­skiptum gamal­mennanna við ættingja!“

Birgir kveðst sjálfur eiga ást­vin á hjúkrunar­heimili og í því ljósi mót­mælti hann banninu strax morguninn eftir með bréfi til land­læknis.

„Benti ég á að hvað mikil­vægast væri fyrir vel­ferð sjúk­linga með vaxandi minnis­sjúk­dóm að sjá ást­vini sína og bað um lausn. Svar hefur ekki borist. Stór hlut vist­manna á hjúkrunar­heimilum er ról­fær og getur farið allra sinna ferða um sam­fé­lagið að vild, eftir sinni getu eða með að­stoð. Flestir ein­staklingar innan hjúkrunar­heimilis að degi til eru starfs­fólk eða þjónustu­aðilar sem hafa ó­heft ferða­frelsi í sam­fé­laginu og um­gengni á við­komandi stofnun. Mögu­leikar á að smit berist eru því alltaf nokkrir,“ segir hann.

Birgir segir að lokum að þessi ráð­stöfun, að banna til dæmis Alz­heimers-sjúk­lingum að sjá ættingja sína sem þeir enn þekkja, sé nánast ó­mann­úð­leg.