„Meðal margra viðmælenda minna er tæplega níræður karlmaður sem kom daglega til að hitta heilasjúka málstola eiginkonu, lífsförunaut til um 70 ára. Annar eiginmaður hafði um langan tíma tekið virkan þátt í umönnun konu sinnar. Báðum var nánast sparkað burtu.“
Þetta segir Birgir Guðjónsson læknir í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Birgir hefur að undanförnu gagnrýnt heimsóknarbann sem í gildi er á hjúkrunar- og dvalarheimilum landsins vegna COVID-19. Sjálfur er Birgir aðstandandi en hann á konu sem er Alzheimersjúklingur og bundin hjólastól.
Birgir heldur umfjöllun sinni áfram í dag þar sem hann fer yfir þær aðgerðir sem gripið hefur verið til undanfarnar vikur og mánuði. Birgir segir meðal annars:
„Einhver vanhugsaðasta aðgerðin verður að telja fyrirvaralaust harkalegt heimsóknarbann ættingja á hjúkrunarheimili 6. mars. Engar aðrar varúðarráðstafanir voru kynntar. Þar dvelja veikustu einstaklingar þjóðfélagsins. Enginn möguleiki var fyrir ættingja að kynna sjúklingum bannið, kveðja og undirbúa mögulegar samskiptaleiðir. Takmarkaðar heimsóknir hefðu verið sjálfsagðar.“
Birgir rifjar upp að hann hafi bent á veikleika þessa fyrirkomulags með bréfi til Embættis landlæknis þann 7. mars síðastliðinn og aftur 10. mars. Hann hafi bent á að smit gætu borist með öðrum og stakk upp á lausn.
„Þessu var fylgt eftir með blaðagrein 11. mars. Þetta var algjörlega virt að vettugi. Tugir til hundrað veikburða einstaklingar vítt og breitt um landið sem jafnvel að hluta hafði verið sinnt af ættingjum voru settir í félagslega einangrun. Brosandi starfsfólk, faguryrði og iPadar sem virðast vera orðnir að helgitákni, gera ekkert fyrir jafnvel sjón- og heyrnarskerta einstaklinga með dvínandi minni sem gagnast ekki einu sinni sími. Þeir eru sviptir því eina sem skiptir þá máli, samskiptum við ættingja sem þeir enn þekkja.“
Birgir kveðst ekki vera eini aðstandandinn í þessari stöðu og bendir hann á tvö dæmi máli sínu til stuðnings sem vísað er til fremst í þessari grein.
Birgir segir einnig að forstjóri hjúkrunarheimilis hafi rökstutt þessar aðgerðir fjálglega og gefið í skyn að þær kæmu í veg fyrir smit inn á heimilin og tryggðu öryggi. „Fyrsti smitberinn inn á hjúkrunarheimilið er síðan hans eigin starfsmaður. Á Landakoti greindust margir starfsmenn með Covid-19 og margir sjúklingar sýktust. Á Vestfjörðum greindust nokkrir starfsmenn á hjúkrunarheimili með Covid-19 og komu upp alvarleg veikindi á hjúkrunarheimilinu og leiddu til mannsláts. Smit hefur komið að a.m.k. þremur öðrum stofnunum með heimsóknarbann. Þessar smitanir komu ekki frá ættingjum.“
Birgir endar grein sína á að vitna í orð talsmanna stofnana sem hvetja til að ekki sé leitað að sökudólgi. Veiran fari sínar leiðir og „smýgur um allt“ eins og hann kemst að orði.
„Ég tek undir það. Það mátti vera augljóst að þetta gæti gerst. Heimsóknarbannið hefur algerlega brugðist. Engar upplýsingar liggja fyrir um tímasetningu á takmörkun heimsóknarbanns en það gæti orðið á þriðja mánuð. Hver mun muna eftir hverjum?“