Birgir hvetur foreldra til að gefa börnum sínum eina aukagjöf um jólin

Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, hefur starfað mikið með ungmennum á ferli sínum innan lögreglunnar. Fréttir um aukið agaleysi og ofbeldi hjá ungmennum hefur ekki farið fram hjá neinum að undanförnu og gerir Birgir það að umtalsefni í pistli sem vakið hefur athygli.

„Það er vissulega rétt það hafa verið að koma upp mál sem valda smá áhyggjum. Við heyrum það í fréttunum og í umræðunni í kringum okkur. Ég er svo heppinn að í gegnum vinnuna mína fæ ég að ræða við mikinn fjölda ungmenna og einstaklinga sem starfa með ungmennum. Það er ákveðinn rauður þráður í gegnum þau samskipti upp á síðkastið að margir virðast deila þessum áhyggjum. Það er líka bæði gott og nauðsynlegt að við ræðum þetta og séum vakandi svo við getum tekið á þeim málum sem upp koma og aðstoðað þá sem á þurfa.“

Birgir segir að í gegnum þessi samskipti sé sterkasti og mikilvægasti þráðurinn sá að lang flestir unglingar séu geggjaðir og að standa sig fáránlega vel.

„Það er það sem við verðum að sjá og muna. Þetta eru einstaklingar sem eru, duglegir, hugrakkir, skapandi, klárir, kurteisir og skemmtilegir. Þetta eru líka einstaklingar sem hafa verið að ganga í gegnum sín mikilvægustu mótunarár á tímum þar sem við hin „vitru“ og fullorðnu erum sjálf kolringluð og rammvillt.“

Birgir bendir á að ekki sé nóg með að þessi kynslóð hafi fæðst inn í glænýjan heim samfélagsmiðla sem við hin bjuggum til og kunnum ekkert að umgangast, heldur fengu þau heimsfaraldur beint í andlitið með tilheyrandi ótta, boðum og bönnum.

„Þær áskoranir sem þessir krakkar hafa verið að fást við eru alls ekkert grín. Það er því nákvæmlega ekkert undarlegt við það að einhverjir þurfi extra leiðsögn, ást og umhyggju. Við þurfum bara að vera tilbúin, vakandi og stundum örlítið meira skilningsrík,“ segir Birgir sem sendir foreldrum ákveðin skilaboð og pínulitla áskorun að lokum.

„Nú um jólin þá vil ég biðja ykkur til að gefa unglingunum ykkar eina auka gjöf. Eftir allt sem á undan er gengið þá eiga þau það svo fáránlega skilið. Þið megið gefa gjöfina strax og þið þurfið alls ekki pakka henni inn. Gefið þeim það sem þeir þurfa sennilega mest af öllu. Meira en Playstation fimm eða sextíu og sex gráður úlpu. Gefið þeim ósvikna athygli og raunverulegt óstafrænt „like“.“