„Þetta er langt frá því að vera í fyrsta sinn sem lögreglan lendi á svona vegg en þarna fékk ég bara nóg,“ segir Birgir Örn Guðjónsson, einnig þekktur sem Biggi lögga, í pistli á Facebook-síðu sinni sem vakið hefur talsverða athygli.
Í pistlinum veitir hann lesendum innsýn í samfélagið í gegnum störf lögreglu. „Sönn saga en lyginni líkust,“ segir Birgir.
Ætlaði að svipta sig lífi
Forvarnir og aukin áhersla á skaðaminnkandi úrræði er varðar fíkniefni eru Birgi hugleikin en í frásögn sinni segir hann að lögregla hafi fengið aðstoðarbeiðni frá aðstandendum einstaklings sem var að glíma við vímuefnavanda.
„Hafði hann að þeirra sögn ætlað að enda líf sitt með of stórum skammti. Lögreglan hafði upp á honum og kom honum undir læknishendur. Hann vildi ekki þiggja þá aðstoð og fór aftur heim.“
Birgir segir að næsta dag hafi lögregla haft afskipti af heimili umrædds einstaklings eftir að vegfarandi tilkynnti óeðlilega hegðun tengda heimilinu. Hann tekur fram í pistli sínum að umrætt heimili sé ekkert óeðlilegt og ekki það sem sumir myndu kalla „óregluheimili“. Aðstandendur afþökkuðu aðstoð að svo stöddu, segir Birgir.
„Seinna sama dag höfðu þessir aðstandendur samt aftur samband og óskuðu þá eftir sjúkrabifreið og lögreglu til að flytja aðilann undir læknishendur. Var þá andlegt ástand aðilans orðið það slæmt að þau voru komin á endastöð og urðu að fá viðeigandi faglega aðstoð fyrir hann.“
Afpantaði sjúkrabílinn
Birgir bendir á að ekkert í lögum leyfi lögreglu að handtaka fólk fyrir að vera veikt og ætlaði hann ekki að gera slíkt.
„Eðlilega vita aðstandendur samt ekki hvernig þetta gengur fyrir sig. Þau vilja bara hjálpa ástvini. Ég afpantaði því sjúkrabíl en hafði samband við lækni og fékk hann á heimilið. Þessi læknir mat að ástand aðilans væri það slæmt að brýn þörf væri á að koma honum á sjúkrastofnun og að hann væri of veikur til að geta metið það sjálfur. Var hann því sjálfræðissviptur í þrjá sólarhringa. Aðilinn brást illa við þessari ákvörðun og streittist við er lögregla flutti hann á sjúkrastofnun í umboði læknisins.“
Birgir segir að eftir að hafa rætt við einstaklinginn hafi annar læknir á þeirri sjúkrastofnun haft samband við hann. „Hann sagði aðilann hættulegan sjálfum sér og öðrum en undir það miklum áhrifum og í það slæmu ástandi að hann þyrfti að „óska eftir því“ að hann yrði vistaður í fangaklefa um nóttina og komið yrði með hann næsta dag. Já þetta er í alvörunni sönn saga! Þetta er langt frá því að vera í fyrsta sinn sem lögreglan lendi á svona vegg en þarna fékk ég bara nóg.“
„Á hvaða öld erum við?“
Birgir segir að þarna hafi annar læknir verið búinn að svipta einstaklinginn sjálfræði en til hafi staðið að aflétta þeirri sviptingu og láta ábyrgðina í hendur lögreglu.
„Á hvaða öld erum við? Ég ræddi lengi við lækninn og útskýrði þá skoðun mína að slíkt væri á engan hátt eðlilegt. Heilbrigðisstofnun gæti ekki óskað eftir því að aðili yrði handtekinn. Ég ákvað því að neita lækninum um þessa beiðni hans. Ég sagði að ef þau gætu ekki aðstoðað veikan aðila þá værum við ekki að fara að taka við honum. Lögreglan hefði ekki slíkar forvirkar heimildir að geta handtekið aðila sem hugsanlega á eftir að gera eitthvað vegna veikinda sinna. Þar á heilbrigðiskerfið að grípa inn í.“
Birgir segir að læknirinn hafi að lokum ákveðið að taka við einstaklingnum og leggja hann inn. Hann tekur fram að læknirinn hafi verið mjög kurteis á allan hátt og vill hann ekki dæma hann eða samstarfsfólk hans.
„Þetta eru nefnilega þau sem eru sérfræðingarnir á þessu sviði. Ekki lögreglan. Þetta er bara partur af göllum og götum í kerfinu sem við höfum búið við. Göllum sem verður að lagfæra, götum sem þarf að stoppa upp í og hugarfar sem þarf að breytast. Þetta ástand er hvorki boðlegt fyrir lögreglu né heilbrigðisstarfsfólk og alls ekki þá sem eru veikir og þurfa aðstoð. Aukið samstarf mismunandi stofnana og félagasamtaka er lykillinn að forvörnum og aukinni velsæld þeirra hópa sem eru í hvað viðkvæmastri stöðu. Það eru til lausnir og ráð. Við verðum að gera betur.“