„Ég þekki dæmi þess að fólk sem verið hefur saman í um 70 ár geti ekki lengur hist. Nú fyrir skömmu hringdi í mig grátklökkur tæplega níræður gamall maður sem ekki fær að hitta eiginkonu sína.“
Þetta segir Birgir Guðjónsson, fyrrverandi yfirlæknir á Hrafnistu og fyrrverandi aðstoðarprófessor við Yale-háskóla í Morgunblaðinu í dag. Birgir hefur að undanförnu gagnrýnt heimsóknarbann sem er meðal annars í gildi á hjúkrunar- og dvalarheimilum vegna COVID-19 eins og kom fram í grein hans í Fréttablaðinu á dögunum.
Í Morgunblaðinu segir hann að takmarka aðgengi eins ákveðins hóps standist hvorki læknisfræðilegar forsendur né út frá heilbrigðri skynsemi. „Á sama tíma og allar heimsóknir eru bannaðar þá hittast aðrir einstaklingar í þjóðfélaginu að vild.“
Birgir er sjálfur aðstandandi en hann á konu sem er Alzheimersjúklingur og er bundin hjólastól. Hann segir að þegar hann kom frá henni þann 6. mars síðastliðinn hafi verið búið að setja á bann við heimsóknum.
„Þetta var gert algjörlega fyrirvaralaust og jafnframt með þessum harkalega hætti. Ég skrifaði strax bréf til að koma mótmælum á framfæri enda stenst það ekki læknisfræðilega skoðun né heilbrigða skynsemi að takmarka aðgengi ákveðins hóps á meðan starfsfólk gengur inn og út,“ segir Birgir við Morgunblaðið.
Hann er mjög ósáttur vegna málsins en hann og eiginkona hans hafa verið lífsförunautar til 60 ára.
„Ég er síðan fyrirvaralaust horfinn úr hennar lífi, án nokkurs samráðs eða undirbúnings. Í okkar tilfelli er þetta viðráðanlegt þar sem ég get talað við hana í síma, en maður hefði viljað fá tíma til að undirbúa þetta. Ég hef ítrekað reynt að koma þessum sjónarmiðum á framfæri án árangurs,“ segir hann í umfjöllun Morgunblaðsins.