Birgir: „Ég tel mig vinna í frá­bæru lög­reglu­liði með veru­lega færum ein­stak­lingum“

„Ég veit ekki alveg hvernig þessi „merkja tíska“ kom inn hjá okkur í lög­reglunni. Væntan­lega eitt­hvað er­lendis frá eins og flest annað. Sama hver á­stæðan er þá sagði Ás­geir Þór yfir­lög­reglu­þjónn að þetta hefði farið úr böndunum og ég er alveg sam­mála honum,“ segir Birgir Örn Guð­jóns­son lög­reglu­maður.

Birgir Örn, oft kallaður Biggi lögga, tjáði sig um merkja­málið á búningum lög­reglu­manna á Facebook, en mynd af merkjum á búningi ís­lenskrar lög­reglu­konu í vikunni vakti mikla at­hygli. Þar á meðal var svo­kallaður Vín­lands­fáni sem tengdur hefur verið við ný­nasisma og hægri öfga­hyggju.

Birgir segir að það sé á­stæða fyrir því að lög­reglu­menn séu í búningi. „Fólk á að vita að hverju það gengur þegar það nálgast lög­regluna, sama hvað ein­stak­lingur það er sem ber búninginn. Það á engum að standa ógn af lög­reglunni og því er það veru­lega slæmt ef ein­hver af þessum merkjum hafa gefið í skyn að það sé á­stæða til þess. Sá ótti væri nefni­lega ó­þarfur,“ segir hann.

Birgir bendir á að hratt hafi verið tekið á málinu innan lög­reglunnar og strax hafi komið skila­boð um að engin auka­merki væru leyfð utan á ein­kennis­búningum eða innan klæða.

„Því ætti þetta ekki að koma aftur upp. Eftir stendur samt um­ræðan og hugar­farið. Hvert viljum við fara með þetta?“

Birgir segir að það sé engum til góðs að það myndist ein­hver spenna milli sam­fé­lags og lög­reglu. Dæmi séu úr sam­tímanum frá öðrum ríkjum um hvernig slík spenna getur þróast.

„Í heil­brigðu sam­fé­lagi er lög­reglan partur af sam­fé­laginu en stendur ekki fyrir utan það. Ég trúi því að við viljum hafa það þannig hér. Núna er á­kveðin pirringur innan á­kveðins hóps í sam­fé­laginu og líka innan lög­reglunnar. Það er ekki gott. Föllum ekki í þá gryfju að fara að stilla hópum upp á móti hvor öðrum og ekki heldur að gera þessa um­ræðu flokks­pólitíska. Þótt sum þessara um­ræddu merkja komi frá Banda­ríkjunum þá þurfum við ekki að taka orð­ræðuna þaðan líka.“

„Ég tel mig vinna í frá­bæru lög­reglu­liði með veru­lega færum ein­stak­lingum. Ein­stak­lingum með mis­munandi styrki og veik­leika að sjálf­sögðu, annað væri ó­eðli­legt. Ég er líka stoltur af vinnunni minni. Við erum að leggja hart að okkur og á­lagið er sér­lega mikið þessi misserin. Það eru nýjar á­skoranir í hverju horni. Á­skoranir sem við tæklum flestar drullu vel.“

Birgir segir að þarna hafi greini­lega verið gerð mis­tök og það segir hann að sé veru­lega leiðin­legt. Samt sem áður sé hægt að læra af þessum mis­tökum og þau þurfi ekki að hafa nei­kvæðar af­leiðingar þegar upp er staðið. „Ef við höldum rétt á spilunum getur þessi um­ræða meira að segja gert okkur að enn betra lög­reglu­liði. Núna verður t.d. fræðsla um svona mál­efni pott­þétt tekin enn lengra innan lög­reglu­námsins.

Birgir segir að lokum að senni­lega hvergi í heiminum sé hægt að finna lög­reglu­lið sem nýtur sama trausts og ís­lenska lög­reglan. Slíkt traust sé gríðar­lega dýr­mætt.

„Ég vona að börn á leið í skólann muni aldrei hætta að vinka okkur eins og rokk­hetjum þegar við keyrum fram­hjá. Ég vona líka að allir hópar sam­fé­lagsins finni sig örugga og treysti lög­reglunni á Ís­landi um ó­komna tíð. Í þeirri veg­ferð berum við lög­reglu­menn að sjálf­sögðu mesta á­byrgð. En um­ræðan skiptir líka miklu máli. Góð og heil­brigð sam­búð lög­reglu og sam­fé­lags er okkur öllum til góðs. Höldum á­fram að vinna að því.“