Birgir bjargaði konu sem hafði verið byrlað ó­lyfjan í miðbænum

Birgir Ómar Jóns­son er full­viss um að hann hafi komið í veg fyrir nauðgun í mið­bænum um helgina. Birgir bjargaði konu sem hann telur hafa verið byrlað ó­lyfjan í mið­bænum.

Birgir ræðir málið við Frétta­blaðið. „Þetta hefði bara endað með nauðgun ef ég hefði ekki stöðvað bílinn,“ segir Birgir við blaðið. Birgir birti frá­­sögnina fyrst á sam­­fé­lags­­miðlinum Twitter þar sem hann furðar sig á því að lög­regla hafi ekki komið konunni fyrr til að­­stoðar.

„Vegna þess að það keyrði lög­­reglu­bíll fram­hjá henni rétt á undan mér, áður en ég stoppaði,“ út­­skýrir Birgir. Hann tekur fram að lög­­reglu­­þjónarnir sem komið hafi þeim til að­­stoðar eftir að hann hringdi hafi verið til mikillar fyrir­­­myndar og afar hjálp­­söm.

Við­tal við Birgi í held sinni á vef Frétta­blaðsins.