Bil­stjóri í Eflingu undrandi yfir þessari ákvörðun: „Sjálf­sagt að hinir lægst launuðu fái hærri laun“

Gregor Sagetch, bíl­stjóri hjá Kynnis­ferðum, var meðal Eflingar­fólks sem mætti á bar­áttu­fund Eflingar í Iðnó í há­deginu í dag. Hann er ekki í verk­falli en kveðst styðja að­gerðir Eflingar í hví­vetna og furðar sig á því að Sam­tök at­vinnu­lífsins gangi svo langt með að­gerðum sínum í stað þess að hækka laun hinna lægst launuðu.

Þetta segir Sagetech í sam­tali við Frétta­blaðið.

„Ég hef fylgst með öllum fréttum frá því að bar­áttan hófst. Ég er í Eflingu og mér finnst það sjálf­sagt að hinir lægst launuðu fá hærri laun, ekki á for­sendum SA,“ segir Gregor í sam­tali við Frétta­blaðið.

„Mér finnst per­sónu­lega að það hljóti að vera þannig að það skipti ekki eins miklu máli fyrir þá hærra launuðu að hinir lægst launuðu fái að­eins hærri laun, því það breytir raun­veru­lega svo miklu fyrir þá.“

Að­spurður hvað sér finnist um á­kvörðun SA um að grípa til verk­banns frá og með 2. mars, þar sem Eflingar­fólk verður launa­laust fyrir vikið, segir Gregor:

„Miðað við það sem ég hef séð finnst mér kröfur og að­gerðir Eflingar mjög hóf­legar og rétt­lætan­legar. Þetta snýst um lífs­kjör fólk og mér finnst hegðun SA þeim ekki sæmandi og það er mikil van­virðing gagn­vart okkur að grípa til þessara að­gerða og þess vegna styð ég Eflingu.“

Gregor segist spurður telja það líta þannig út að SA vilji ekki semja við Eflingu því þar séu á ferðinni þeir lægst launuðu í ís­lensku sam­fé­lagi.

„Það lítur þannig út. Ég get ekki séð hvernig að­eins hærri laun fyrir okkur skipta Sam­tök at­vinnu­lífsins svona miklu máli, því nú munu þau tapa miklu meiri fjár­munum á því að banna okkur að vinna, sem mun auð­vitað kosta fyrir­tækin gríðar­lega mikla fjár­muni.“

Hefurðu á­hyggjur af því að missa launin þín í verk­banni?

„Ég þoli það alveg að vinna ekki í nokkra daga eða svo. En mér finnst það svo furðu­legt að þeir séu frekar til­búnir til þess að missa svona miklar tekjur í staðinn fyrir að borga okkur bara ör­lítið hærri laun.“