Bílnum stolið og aðgangi fjölskyldunnar eytt: „Það er ekki hægt að útiloka það“

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir reglulega eftir bifreiðum sem búið er að stela. Í gær birtist ein slík tilkynning á Facebook-síðu lögreglu vegna þjófnaðar á Volkswagen iD3 Pro-rafmagnsbíl sem var stolið frá Austurgötu í Hafnarfirði, líklega að morgni mánudags eða aðfaranótt mánudags.

Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag og þar kemur fram að bifreiðin hafi verið læst og í hleðslu þegar henni var stolið.

„Önnur fjarstýringin er horfin og hún er væntanlega í fórum þess sem stal bílnum. En hvernig viðkomandi komst yfir fjarstýringuna er ekki vitað,“ hefur Morgunblaðið eftir Sævari Guðmundssyni, aðalvarðstjóra lögreglunnar í Hafnarfirði.

Ekkert bendir til þess að þjófurinn hafi hakkað sig inn í bílinn en þó er búið að eyða út aðgangi fjölskyldunnar að reikningnum sem er í appi í símum eigenda. Það gerir það meðal annars að verkum að ekki er hægt að sjá hvar bíllinn er niðurkominn.

Sævar kveðst ekki geta sagt til um það hvort um skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða og hvort markmiðið sé að koma bílnum úr landi. „En það er ekki hægt að útiloka það,“ segir hann við Morgunblaðið.