Miklar umræður hafa eðlilega sprottið upp eftir að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tilkynnti að borgin ætli að fækka bensínstöðvum í borginni um helming á næstu sex árum. „Þegar borgin vill þróast hratt frá notkun jarðefnaeldsneytis vegna loftslagsmála liggur beint við að finna leiðir til að fækka bensínstöðvum,“ segir Dagur.
Jón G. ræðir þessi mál við Jón Ólaf Halldórsson, formann Samtaka verslunar og þjónustu og forstjóra Olís, í nýjasta þætti sínum á Hringbraut og spyr hann hvort borgin ætli að kaupa bensínstöðvarnar sem á að fækka eða bara reka félögin út af lóðunum? Og á að úrelda bílaflota upp á 300 til 400 þúsund bíla á nokkrum árum? Er það ekki hrein eignaupptaka hjá fjölskyldum landsins sem hafa lagt mikið fé í bílakaup?
Í viðtalinu er því velt upp hvort þessi framganga borgarinnar gagnvart olíufélögunum sé byrjunin á frekari afskiptum borgarinnar af fyrirtækjum í verslun og þjónustu - sem og atvinnulífinu almennt. Mjög athyglisverðu kökuriti er brugðið á skjáinn sem sýnir að fólksbílar eru valdir að 4% af losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi.
Og takið eftir; umferð flugvéla er einhverra hluta vegna haldið utan við þessar tölur þannig að losun fólksbíla er ívið minni en 4 prósent. Fólksbílar vega því engan veginn þungt í stóru myndinni.
Sjá nánar hér í nýjasta þætti Viðskipta með Jóni G.: