Lögregla á höfuðborgarsvæðinu veitti í dag vínrauðum jeppa eftirför. Hún hófst á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ og lauk þannig að lögreglubíll var að aka utan í jeppann til að stöðva hann við höfuðstöðvar ÍSÍ í Laugardal. RÚV greinir frá þessu í dag.
Í samtali við RÚV sagði aðstoðaryfirlögregluþjónninn Jóhann Karl Þórisson að það hafi þurft að kalla til fjölmennt lið vegna eltingaleiksins. Maðurinn í jeppanum var handtekinn á staðnum.
Jóhann segir að tryggja þurfi öryggi vegfaranda þegar svona kemur upp á með því að beina umferð á örugg svæði. Ekki er vitað hvers vegna átti að stöðva jeppann í upphafi.