Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að bíl hefði verið stolið þar sem henni var lagt við verslun í Hafnarfirði. Tilkynning um málið barst á sjöunda tímanum í morgun.
Í skeyti frá lögreglu kemur fram að lögreglumenn á vettvangi hafi borið kennsl á þjófinn í öryggismyndavélakerfi við verslunina. Fóru lögreglumenn heim til þjófsins og þar framvísaði hann kveikjuláslyklum bifreiðarinnar og gaf upp hvar hún væri staðsett.
Alls komu 39 mál inn á borð lögreglu frá klukkan 23 í gærkvöldi til klukkan 11 í morgun og voru verkefnin af ýmsum toga. Leigubílstjóri óskaði eftir aðstoð lögreglu í miðborginni vegna farþega sem neitaði að greiða fyrir farið. Þá datt kona á vespu rétt fyrir klukkan fimm í morgun og hlaut talsverða áverka í andliti.
Þá var kvartað yfir samkvæmishávaða á tólfta tímanum í gærkvöldi en um var að ræða hóp af unglingum sem voru að fagna útskrift úr 10. bekk.