Biðja Emilíu af­sökunar fjórum árum seinna: ,,Með fag­legri við­brögðum hefði verið hægt að draga úr sárs­auka“

Stjórn Í­þrótta­banda­lags Akur­eyrar og Skauta­fé­lags Akur­eyrar sendu í dag frá sér af­sökunar­beiðni þar sem Emilía Rós Ómars­dóttir er beðin af­sökunar á ó­nær­gætinni nálgun og við­brögðum eftir hún hafði stigið fram árið 2018 og greint frá á­reiti af hálfu þjálfara síns. Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins.

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Emilía af­sökunar­beiðnina koma allt of seint en betra sé seint en aldrei.

Emilía steig fram í við­tali við Frétta­blaðið árið 2019 og greindi frá því hvernig þá­verandi þjálfari hennar hjá Skauta­fé­lagi Akur­eyrar, sem byrjaði á því að á­reita hana, hafi með öllu snúist gegn henni og lagt hana í ein­elti.

„Ég er alla­vegana á­nægð með að hún hafi á endanum komið,“ segir Emilía í sam­tali við Frétta­blaðið eftir að hafa fengið af­sökunar­beiðnina. „Því það er svo mikið af slæmum orð­rómum sem mynduðust út frá til dæmis yfir­lýsingu sam­bandanna á sínum tíma.“

Á þeim tíma gáfu sam­böndin út yfir­lýsingu þar sem sagði að engar sannanir eða merki voru um að þjálfari list­skauta­deildarinnar hafi brotið siða­reglur eða mis­munað iðk­endum. „Það var því miður ekki raunin og þegar málið var skoðað nánar þá kom í ljós að hann á­reitti Emilíu á ó­við­eig­andi hátt. Fyrir það var hann á­minntur og hætti hann sjálfur sinni þjálfun hjá fé­laginu stuttu seinna," segir í sam­eigin­legri yfir­lýsingu ÍBA og SA.

Árið 2019 sagði Emilía frá því hvernig þá­verandi þjálfari hennar, sem byrjaði á því að á­reita hana, hafi með öllu snúist gegn henni og lagt hana í ein­elti. Emilía er upp­alin á Akur­eyri en flutti til Reykja­víkur árið 2018 eftir að hafa reynt að sporna við kyn­ferðis­legri á­reitni þjálfara síns hjá Skauta­fé­lagi Akur­eyrar og viður­kenndi þá að henni finnist erfitt að heim­sækja heima­bæ sinn. Hún fékk ekki stuðning frá Skauta­fé­lagi Akur­eyrar á sínum tíma.

,,Með fag­legri við­brögðum hefði verið hægt að draga úr sárs­auka og þjáningu þeirra sem að málinu komu og auð­velda lausn máls," segir í yfir­lýsingu ÍBA og SA. „Þrátt fyrir að á þeim tíma er málið kom upp væru ekki til verk­ferlar sem auð­velt var að styðjast við og fylgja, þá breytir það ekki því að það er alltaf á á­byrgð stjórnar­fólks í í­þrótta­hreyfingunni að leysa mál með þeim að hætti að þau valdi sem minnstri van­líðan þeirra sem mis­rétti eru beittir."

Segjast sam­böndin hafa dregið af þessu lær­dóm „auk þess sem í­þrótta­hreyfingin öll hefur sett sér betri reglur og verk­ferla, m.a. með stofnun em­bættis sam­skipta­ráð­gjafa í­þrótta- og æsku­lýðs­starfs. Við heitum því að fylgja þeim leið­beiningum og þeim línum sem nú hafa verið lagðar í þeim vanda­sömu málum sem upp geta komið innan í­þrótta­hreyfingarinnar, með það að leiðar­ljósi að öllum líði sem best og geti stundað sínar í­þróttir í öruggu um­hverfi."

Byrjaði á sak­lausan hátt


Í við­tali við Frétta­blaðið árið 2019 segir Emilía Rós að þjálfarinn, búlgarskur maður sem kom hingað til lands frá Hollandi hafi komið vel fyrir í fyrstu. Það hafði verið erfitt and­rúms­loft í Skauta­fé­lagi Akur­eyrar um tíma og því tóku honum allir fagnandi í fyrstu. Hún lýsti sam­skiptum sínum við manninn í æfinga­búðum sem farið var í Sví­þjóð árið 2017.

„Þetta byrjaði á sak­lausan hátt, hann sendi mér skila­boð á Face­book og byrjaði oft spjallið á því að tala um æfinga­prógramið en svo færði hann sig yfir í að bjóða mér út. Hann byrjaði að hringja í mig líka og fljót­lega vatt þetta upp á sig og hann fór að senda mér skila­boð á öllum tíma sólar­hringsins. Mér fannst ó­þægi­legt hvernig hann talaði við mig og at­huga­semdir um líkama minn og fegurð vöktu með mér ótta og ó­þæginda­til­finningu.“

Þegar heim til Ís­lands var komið hélt á­reitnin á­fram. Hann bauð henni í bíó og í göngu­túra. Vildi fá hana í heim­sóknir heim til sín og lagði til að þau færu út að borða á af­viknum stað fyrir utan bæjar­mörkin þar sem þau gætu fengið frið. Hann gaf henni konfekt í hjarta­laga öskju, skart­gripi, ilm­vatn og fleiri gjafir í hennar ó­þökk og Emilía leitaði til for­eldra sinna eftir að­stoð.

Við­talið við Emilíu Rós frá árinu 2019 má lesa í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér.