Bergþóra vegamálastjóri í kröppum dansi um helgina: „Ég get nú ekki kennt Vegagerðinni um þetta“

Betur fór en á horfðist þegar Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, lenti utan vegar á Hellisheiði á laugardag. Engan sakaði í óhappinu en Bergþóra var með hestakerru í afturdragi þegar óheppnin bankaði upp á.

Morgunblaðið greinir frá þessu í dag.

„Ég þekki þennan veg nú mjög vel, ég keyrði hann á hverjum degi í tólf ár. Við vorum þarna í hálkuskilyrðum og með hestakerru. Það sem ég er þakklát fyrir ekki síst, er að þetta er ein af þeim vegöxlum sem búið að laga. Þetta er dæmi um veg sem er fyrirgefandi. Maður rennur þarna út af honum og er þar og fer ekki í mikla kollhnísa. Við höfum lagt áherslu á það að það séu fleiri slíkir staðir,“ segir Bergþóra í Morgunblaðinu þegar hún er spurð að því hvort óhappið á laugardag veki spurningar um vetrarþjónustu á vegum.

Bergþóra segist hafa fengið góða hjálp lögreglu og vegfarenda en fyrir mestu sé að allir sluppu heilir.

„Það gekk á með éljum og hitastigið var upp og niður. Þannig að við vorum þarna í erfiðum skilyrðum. Ég get nú ekki kennt Vegagerðinni um þetta,“ segir hún við Morgunblaðið.