Bergþór sár og svekktur út í Katrínu

Bergþór Ólafsson, þingflokksformaður Miðflokksins, er sár og svekktur út í Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra vegna viðbragða hennar í máli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og glærunnar um hann í Verslunarskóla Íslands.

„Þar mátti sjá tveimur helstu illmennum sögunnar og fjöldamorðingjum, Adolf Hitler og Benito Mussolini, raðað upp við hlið Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fyrrverandi forsætisráðherra og þeir sagðir aðhyllast sömu stjórnmálastefnu,“ segir Bergþór í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag, en hann bætir við að glæran hafi verið sett saman af kennara sem vill svo til að er líka frambjóðandi Vinstri hreyfingarinnar–græns framboðs á sveitarstjórnarstiginu. Eitthvað sem gæti hafa litað sýn hans við gerð glærunnar, að sögn Bergþórs.

„Það voru hins vegar aðeins tveir sem töldu ekki ástæðu til að fordæma þessa glæru þegar hún kom fram á sjónarsviðið,“ segir hann og nefnir að það hafi annars vegar verið skólameistari Verslunarskólans og hins vegar Katrín Jakobsdóttir.

„Sami forsætisráðherra og hefur sölsað undir sig alla mannréttindamálaflokkaístjórnarráðinu og talar sig hása um mikilvægi þess að koma í veg fyrir hvers kyns hatursorðræðu í íslensku samfélagi. Ráðherrann ætlar meira að segja að skylda stóra hópa á alls konar námskeið í hatursorðræðu.“

Bergþór segir að orð orð forsætisráðherra séu nú sem oft áður hjóm eitt.

„Hatursorðræða er það bara þegar tilteknir hópar verða fyrir henni. Það er bara hatursorðræða þegar flokkurinn hennar og samflokksmenn verða fyrir barðinu á óvæginni umræðu. Það er alls ekki hatursorðræða þegar Sigmundur Davíð er settur í félag með fjöldamorðingjum og illmennum í kennslustund, á kosningaári. Þetta hatursorðræðublæti ráðherrans, sem löngu er orðið lúið, missir endanlega marks þegar öllum verður ljóst að reglurnar eru ólíkar eftir því hvar þú stendur í stjórnmálum eða hvers kyns þú ert.“

Bergþór veltir fyrir sér hvað hefði gerst ef einhver annar en Sigmundur hefði verið á umræddri glæru.

„Ætli það mætti ekki hugsa sér að ef sitjandi forsætisráðherra hefði verið raðað á glæru í kennslustund í Verslunarskólanum af kennara og frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins við hlið Jósefs Stalíns og Maós Tse-Tungs og sett þar að jöfnu hefði allt í raun farið á hliðina í opinberri umræðu. Jú ætli það ekki. Er ekki rétt að hætta að verja bara sum mannréttindi en ekki önnur. Hætta að ýta undir hatur á ákveðnum hópum í samfélaginu en verja aðra með kjafti og klóm. Kannski ætti þessi nýja stofnun mannréttinda sem ríkisstjórnin kom sér saman um að setja á fót – þrátt fyrir fjöldann allan af stofum, stofnunum og deildum sem hafa sama hlutverk með höndum í boði ríkisins – að einbeita sér að því. Ég er þó ekki vongóður og bíð bara eftir því að kynnt verði stofnun Hatursorðræðustofnunar ríkisins og við færumst enn fjær markmiðinu.“