Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, óttast mjög þær afleiðingar sem tilkoma Borgarlínu mun hafa fyrir hefðbundna umferð á höfuðborgarsvæðinu.
Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag vísar Bergþór til þess að í vikunni var kynnt í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkur skipulags- og matslýsing vegna nýs deiliskipulags fyrir 1. Lotu Borgarlínu sem innifelur Suðurlandsbraut og hluta Laugavegar.
„Í skipulagslýsingunni er rifjað upp að „Í frumdragaskýrslu Borgarlínunnar (birt í janúar 2021) er lagt út með þá útfærslu að akreinum fyrir bílaumferð verði fækkað úr fjórum akreinum í tvær. Gert er ráð fyrir að sérrými borgarlínunnar verði að mestu miðlæg og ein akrein í hvora átt fyrir bílaumferð. Sú breyting er einnig lögð til að vinstri beygjur verði ekki lengur mögulegar nema á hluta gatnamóta.“ og síðan segir „Samhliða breytingum á göturýminu er gert ráð fyrir að bílastæðum fækki við Suðurlandsbraut.“
Bergþór segir að þessi upprifjun ætti að ýta við þeim sem telja að til einhvers sé vinnandi að verja forsvaranlegt flæði fjölskyldubílsins á götum Reykjavíkur.
„Þegar Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði mig í þinginu í júní 2020 í tengslum við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hvort við værum ekki sammála um að „…meginverkefni ríkisins í þessu [séu] auka akreinar fyrir almenningssamgöngur innan höfuðborgarsvæðisins?“ var ljóst að skilningur þingmannsins var sá að bætt yrði við akreinum, en þær ekki teknar frá núverandi umferð. Nú blasir við önnur mynd,“ segir Bergþór.
„Það verða teknar akreinar, það verða tekin bílastæði og það verður alveg örugglega gengið þannig frá málum að fjölskyldubíllinn þarf að stoppa eins oft og mögulegt er á vegferð sinni, með tilheyrandi auknum útblæstri. Það er ekki annað hægt en að hafa skömm á slíkum „loftslagsaðgerðum“. Þessi breytta mynd kallar á endurmat á verkefninu öllu.“