Bergþór og Laufey keyptu sér glæsilega eign í Garðabæ – Sjáðu myndirnar

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, og Laufey Rún Ketilsdóttir, starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, keyptu sér glæsilega eign í Garðabæ fyrir skemmstu. Um er að ræða hús við Þrastanes í Garðabæ en það er 365 fermetrar og með fimm svefnherbergjum.

Smartland greindi frá fasteignakaupum þeirra Bergþórs og Laufeyjar í dag.

Eins og kunnugt er eiga þau von á sínu fyrsta barni og hafa þau haldið heimili á Akranesi undanfarin misseri. Það verður ögn styttra að fara í vinnuna fyrir þau eftir vistaskiptin en eins og kunnugt er hefur Bergþór setið á þingi frá árinu 2017.

Húsið við Þrastanes var áður í eigu Arnars Þórs Stefánsson, lögmanns á lögmannsstofunni Lex en hann keypti húsið árið 2014. Ljóst má vera að Bergþór og Laufey hafi þurft að rífa upp veskið fyrir kaupin en ásett verð á húsið var 179 milljónir króna.

Eins og flottum húsum sæmir er stór og mikill garður í kringum húsið og að sjálfsögðu heitur pottur sem ætti að nýtast vel eftir langa vinnudaga.

Meðfylgjandi myndir birtust í frétt DV en þær eru frá Fasteignaljósmyndun.