Bergþór: Ef þú hatast út í þetta fólk ertu að tjá þig um eigin óhamingju

Bergþór Pálsson, tónlistarmaður og skólastjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar, birti áhugaverða vangaveltu á Facebook-síðu sinni í gær.

„Það kemur fyrir hjá fréttamiðlum á Facebook að við verðum vitni að ofsafenginni reiði í athugasemdum. Sumt fólk virðist beinlínis hlakka yfir því að geta ausið fúkyrðaflaumi yfir fólk í framlínunni, hvað lítið sem ber á góma og oft án nokkurs skilnings eða ígrundunar á efninu,“ segir Bergþór og birtir myndir af Katrínu Jakobsdóttur, Davíð Þór Jónssyni, Jóni Steinari Gunnlaugssyni, Bjarna Benediktssyni og Gísla Marteini Baldurssyni. Þau eiga það öll sameiginlegt að fá reglulega yfir sig fúkyrði frá virkum í athugasemdum.

„Stundum er ljóst að fyrirsögn er tilefni upphrópana, en greinilegt að efni greinarinnar hefur ekki verið lesið. Í gegn skín hatur úr innstu kimum sálarlífsins, í engu samræmi við efnið.“

Bergþór segist oft hafa velt því fyrir sér hvernig svona múgsefjun verður til. Vísar hann í Christian Mogensen sálfræðing sem ræddi um hatursfulla nethegðun á RÚV í vikunni.

„Hann taldi rótina vera einhvers konar tjáningu á eigin óhamingju eða vanrækslu, þannig að í staðinn fyrir að íhuga hvort eitthvað sé að hjá manni sjálfum og hvernig maður geti unnið með sjálfan sig, sé netið notað til að fara í stríð með gífuryrðum. Ástæðan sé sú að það er sálrænt auðveldara að líta svo á að eitthvað sé bogið við alla aðra, heldur en sjálfan sig.“

Bergþór hefur eflaust mikið til síns máls og segir hann að það sé hollt að líta í eigin barm af og til og athuga hvort eitthvað standi í veginum fyrir því að maður sé hamingjusamur.

„A.m.k. er leiðin til hamingju ekki að eyða lífinu í að leita aðeins að göllum annars fólks, rjúka upp til handa og fóta hvar sem það birtist í fjölmiðlum og æpa í kórnum.“