Umræðan um álag á heilbrigðisstarfsfólk hefur verið áberandi að undanförnu og í dag hafa tveir hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum stigið fram og lýst óánægju sinni.
Hringbraut fjallaði í morgun um færslu Soffíu Steingrímsdóttur sem hefur starfað á bráðamóttökunni í sex ár. Tilefnið eru ummæli starfandi forstjóra Landspítalans, Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær þess efnis að starfsmenn væru lúnir.
Nú hefur annar hjúkrunarfræðingur stigið fram, Berglind Gestsdóttir, en Fréttablaðið fjallar um færslu hennar á Facebook.
„Forstjóri Landspítala metur það svo að við sem störfum þar séum orðin lúin. LÚIN!!! Við erum helvítis andskotans ÖRMAGNA! Bráðamóttakan þjónustar BRÁÐ veikindi og oftar en ekki annað sem á ekki heima þar! Við tökum við slösuðum, hjartveikum og andlega veikum og við erum líka notuð sem næstum TVÆR legudeildir!!! af því hinar raunverulegu legudeildir segja NEI það er fullt. En VIÐ! eigum að getað tekið ENDALAUST VIÐ!“
Berglind segir að á deild sem á að taka um 36 sjúklinga séu oftar en ekki 60 til 80 sjúklingar í einu.
„Þar af er hellingur sem situr fastur á deildinni vegna innlagnarkrísu! Þetta er svo GALIÐ! Sjúklingar liggja dögum saman í gluggalausum rýmum. Heldra fólk fær dægurvillu og aðrir þurfa að segja heilsufarssögu sína á göngum þar sem allir heyra og ég tala nú ekki um að fletta sig klæðum,“ segir hún.
Berglind segir það að auki að heilbrigðisstarfsfólk með sérhæfingu, til dæmis þeir sem starfa á bráðamóttökunni, geti ekki meira og séu farnir að segja upp störfum. Þá geti ekki hver sem er farið í þessi störf. Hún segir að kúnninn sé pirraður á löngum biðtíma og eðli málsins samkvæmt fái starfsfólk að heyra það. Því sé jafnvel hótað og ógnað og verði fyrir andlegu og líkamlegu ofbeldi.
Hún segist vera orðin það þreytt að hún treystir sér ekki til að vinna nema sínar eigin vaktir.
„Ég treysti mér ekki á aukavaktirnar sem endalaust er verið að biðja okkur að taka. Það er bara keyrt áfram á örmagna starfsfólki, en nei bara örlítið LÚNU samkvæmt forstjóra! Það styttist í að maður gefist upp eins og hinir og fari annað….Ég verð á vaktinni í kvöld…“