Berglind Ósk kemur flokksmönnum til varnar: „Þessi orðræða gerir ekkert gagn í baráttunni“

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ekki par sátt við umræðuna um meinta gerendameðvirkni meðal flokksmanna sinna á Twitter.

Enn er rætt um „læk“ sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, setti við færslu Loga Bergmanns Eiðssonar á Facebook.

Áslaug Arna sagði í skriflegu svari til fjölmiðla að á erfiðum tímum reyni hún að sýna þeim sem standa henni nærri samkennd. Það mætti gera með öðrum hætti en hún gerði. Hins vegar felist engin afstaða eða vantrú á frásagnir þolenda.

Berglind Ósk segir að umræða um að Sjálfstæðismenn séu gerendameðvirkir geri ekkert gagn:

„Umræðan hefur að sjálfsögðu verið einstaklega triggerandi síðustu daga. Svo fer man inná forritið og sér að annað hvert tíst setur mann í hólf sem geranda eða gerandameðvirkan eingöngu vegna stjórnmálaskoðana,“ segir hún á Twitter: „Þessi orðræða gerir ekkert gagn í baráttunni gegn kynferðisofbeldi.“

Hún tekur svo skýrt fram: