Berg­ey VE veiddi risa-þorsk í Háfa­dýpinu: „Um 50 kg. að þyngd og um 1,80 að lengd“

Systur­skipin Vest­manna­ey VE og Berg­ey VE hafa fiskað afar vel að undan­förnu. Vest­manna­ey fór á sjó klukkan tíu á laugar­dags­morgun og var komin til löndunar með full­fermi síð­degis á sunnu­dag, segir í færslu Síldar­vinnslunnar.

Skipið fór út strax að löndun lokinni og mun væntan­lega landa full­fermi á ný í fyrra­málið. Berg­ey hélt einnig til veiða á laugar­dag og landaði full­fermi í gær. Gert er ráð fyrir að hún landi á ný á morgun. Heima­síða Síldar­vinnslunnar fékk síðan fregnir af því að Berg­ey hefði veitt ein­stak­lega myndar­legan þorsk og sló að því til­efni á þráðinn til Jóns Val­geirs­sonar skip­stjóra.

„Jú, við fengum ó­venju stóran þorsk undir lok síðasta túrs í Háfa­dýpinu. Þetta var þorskur sem var um 50 kg. að þyngd og um 1,80 að lengd. Hann var gamall og virðu­legur og hefur árum saman sloppið við net og troll. Við vorum mest á Sel­vogs­bankanum í túrnum en skruppum í Háfa­dýpið rétt undir lokin. Það hefur verið alveg fínasta veiði og túrarnir eru ekki langir þegar fiskast svona. Núna erum við að toga í Háfa­dýpinu í leiðinda­veðri. Það er austan 18- 20 metrar og verður þannig í dag. Síðan held ég að sé betra í kortunum. Aflinn hér er blandaður en þetta er allt mjög góður fiskur,“ segir Jón.

Sjá má þorskinn í allri sinni dýrð hér að neðan