Beraði kyn­færi sín við Selja­skóla: Þriðja skiptið á tveimur mánuðum

Þriðja til­vik þess að maður berar kyn­færi sín við skóla­krakka í Selja­skóla í Selja­hverfi á einungis tveimur mánuðum átti sér stað í síðustu viku. Lög­regla hefur mann í haldi vegna málsins.

Segir Ævar Pálmi Pálma­son, að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjónn, í sam­tali við mbl.is að við­komandi neiti sök. Hann segist ekki geta tjáð sig um hvort lög­reglan telji að sami maður hafi berað sig í þrí­gang, eða hvort að um sitt­hvor til­vikin sé að ræða.

Ævar segir að lög­reglan rann­saki þó hvort til­vikin tengist. Lög­reglan hafi hins­vegar úr litlu að moða vegna þeirra til­vika sem urðu í janúar. Einungis væri lög­reglan með lýsingar frá börnum á milli handanna og þá hefðu at­vikin átt sér stað í myrkri.

„Lög­regl­an var með auk­inn við­búnað þarna næstu dag­ana á eft­ir og vik­urn­ar í raun­inni, bæði í formi auk­ins eft­ir­lits á svæðinu og svo vor­um bara bæði með merkta bíla og ó­merkta bíla. Ég veit að skól­inn sjálf­ur jók við eft­ir­lit og svona við­veru á skóla­lóðinni á skóla­­tíma,“ segir Ævar.