Bensínlausir Rússar báðu úkraínsku lögregluna um aðstoð

Inn­rás Rússa í Úkraínu er að reynast Rússum erfiðari en þeir áttu von á. Rúss­lands­her er að missa bæði meiri mann­afla á víg­stöðvunum en von var á, auk þess sem meira gengur á vopn þeirra en búist var við.

Þá hafa aðrir erfiðleikar bæst við eins og í tilfelli tveggja Rússa sem urðu bensínlausir á ferð sinni inn í Úkraínu. Myndir af þeim og sögunni hefur verið deilt víða á samfélagsmiðlum, en hana ritar úkraínskur fréttaritari.

„Þessir tveir rússnesku bjánar í Shevchenkove, Kharkiv héraði, urðu bensínlausir. Og gettu hvað þeir gerðu,“ segir í frásögninni.

„Þeir mættu inn á lögreglustöð í Úkraínu… Og spurðu hvort þeir mættu fá smá bensín.“

Frásögnin hefur vakið mikla athygli en báðir Rússarnir eru nú í haldi úkraínsku lögreglunnar.