Verð á bensín og dísil­olíu komið yfir 300 krónur!

Bensín­verð og verð á dísil­olíu er komið yfir 300 krónur eftir hækkanir í morgun. Bensín­verð hefur hækkað síðustu vikurnar í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu og hækkandi heims­­markaðs­verðs.

Joe Biden for­seti Banda­ríkjanna hélt sjón­varps­ræðu í gær þar sem hann til­kynnti að Banda­ríkin myndi hætta að kaupa elds­neyti frá Rúss­landi. Talið er lík­legt að það hafi haft á­hrif á heims­verðið en þá hafa stór olíu­fyrir­tæki eins og Shell einnig hætt að eiga í við­skiptum við Rússa.

Á bensín­­stöðvum N1 kostar lítrinn af bensíni á bilinu 300,9 krónur til 303,9 krónur. Eina Olís stöðin sem nær 300 krónunum er Olís í Hraun­eyjum, en þar kostar lítrinn 302,8 krónur.

Lægst er verðið hjá Costco í Garða­bæ en þar kostar bensín­lítrinn nú 255,9 krónur. Þar þarf fólk á­­skriftar­kort til að versla sér bensín. Al­­gengasta verð á bensíni á landinu í dag er í kringum 298 krónur.