Benedikt segir spillingu skekja landið: „Það fer hrollur um þá“

Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar, segir að spillingin ráði ríkjum hér á landi sem kjósendur bera ábyrgð á. Þrátt fyrir það fá þeir enga hlutdeild í spillingunni og hafa raunar á henni skömm. Þetta segir Benedikt í grein sinni í Morgunblaðinu í dag.

„Öðru hvoru koma upp mál sem vekja svo mikla reiði landsmanna að allt leikur á reiðiskjálfi. Í nokkra daga. Svo dettur allt í dúnalogn aftur. Flestum veitist auðvelt að sjá smámál meðan þau stærri sem blasa við eru látin óátalin. Enn gildir gamla þversögnin um flísina og bjálkann.“

Benedikt segir að þegar einhver telji að aðrar reglur gildi um hann en allan almenning þá megi kallað spillingu.

„Hún er þó hálfu verri þegar fest er í lög að ekki gildi sömu reglur um alla. Verst er landlægt misrétti með stuðningi Alþingis og flestra stjórnmálaflokka. Og gott og heiðarlegt fólk viðheldur óréttlætinu með atkvæði sínu. Nokkur dæmi: Sumir hafa hálfan kosningarétt á við aðra. Sérvalinn aðall hefur einkarétt á gæðum sjávar á spottprís. Almenningur er látinn borga okurverð fyrir landbúnaðarafurðir og kallað stuðningur við bændur.“

Benedikt rifjar svo upp þrjár nýlega greinar frá hörðum Sjálfstæðismönnum; Vilhjálmi Bjarnasyni, Gunnari I. Birgissyni og Friðjóni R. Friðjónssyni. Vilhjálmur og Gunnar fjölluðu meðal annars um spillingu í sínum greinum, til dæmis hvað varðar sjávarauðlindina. Þá sagði Friðjón að ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að skilgreina sig sem flokk sem er á móti breytingum í efnahagslífinu, sjávarútvegi, landbúnaði, orkumálum, stjórnarskránni og samfélaginu sjálfu þá myndi hann daga uppi og verða að steini.

„Sjálfstæðisflokkurinn er alls ekki eini flokkurinn sem er á móti breytingum. Núverandi vinstristjórn var stofnuð um óbreytt ástand. Nú lýsa þingmenn hennar því yfir að halda skuli samstarfinu áfram að kosningum loknum. Það fer hrollur um þá sem vilja að ranglætinu linni. Eftir stendur: Kjósendur stjórnarflokkanna viðhalda stóru spillingunni, jafnvel þótt þeir fái enga hlutdeild í henni sjálfir og hafi á henni skömm.“