Óhætt er að segja að einstaklingar innan íþróttahreyfingarinnar séu allt annað en sáttir við þá ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um að halda óbreyttum sóttvarnaráðstöfunum til 9. desember næstkomandi.
Ákvörðunin gerir það að verkum að enn verður bið á því að íþróttamenn geti hafið æfingar og keppni. Í löndunum í kringum okkur geta íþróttamenn æft og um næstu helgi verður áhorfendum meira að segja hleypt á leiki í enska boltanum. En hér heima þurfa leikmenn, til dæmis í handbolta og körfubolta, að sitja heima þar sem ekki má einu sinni æfa.
Benedikt Guðmundsson, einn reynslumesti körfuboltaþjálfari Íslands, lét rækilega í sér heyra á Twitter eftir að óbreytta fyrirkomulagið var staðfest.
„Áfram æfinga- og keppnisbann í boði VG þrátt fyrir að önnur lönd leyfi íþróttir. Þrátt fyrir að sérfræðingar og vísindamenn hér heima bendi á ákveðnar staðreyndir. Í VG er fólk sem hefur aldrei stundað íþróttir, hefur engan skilning á þeim, engan áhuga og mætti aldrei í leikfimi,“ sagði Benedikt.
Fleiri einstaklingar innan íþróttahreyfingarinnar og aðrir sem láta sér þykja vænt um framgang íslenskra íþróttamanna létu í sér heyra eins og hér má sjá:
Þegar 9. desember rennur upp hefur íþróttastarf ungmenna og fullorðinna verið bannað eða takmörkunum háð í 156 daga samtals. 45% af árinu.
— Ingólfur Sigurðsson (@ingolfursig) December 1, 2020
— Finnur Stefánsson (@FinnurStef) December 1, 2020
Hafa komið fram rök fyrir því af hverju 16-20 ára fá ekki að stunda íþróttir eins og 12-16 ára? https://t.co/QcuUzcmWcb
— Ásgeir Jónsson (@sonurjons) December 1, 2020
Hver er að tala máli íþróttahreyfingarinnar ? Einstaka íþróttafréttamenn og þjálfarar, hvar eru forsvarsmenn sambandanna og ÍSÍ ? Af hverju eru þeir ekki að tala máli félaganna og íþróttafólks ?
— Ótthar Edvardsson (@OttharE) December 1, 2020
Nú heyrir maður að ekki bara erlendir leikmenn vilji komast í burtu héðan heldur eru íslenskir leikmenn í deildinni farnir að huga að brottför. Komast í burtu frá Íslandi og geta stundað sína íþrótt í friði.Líklega er skaðinn skeður og því miður varanlegur.
— Teitur Örlygsson (@teitur11) December 1, 2020
Sorglegt ástand.
— Hlynur Bæringsson (@HlynurB) December 1, 2020
Það er margt sem truflar mann í þessu öllu. Hvernig má halda því fram að það sé hægt að halda verslunarmiðstöðvum opnum með allri þeirri hópamyndun, en að íþróttamenn megi ekki æfa með takmörkunum. Þetta er jafna sem gengur ekki upp.
— 𝕾𝖓𝖔𝖗𝖗𝖎 Ö𝖗𝖓 🏀 (@snorriorn) December 1, 2020
@RutLiney @AndriStefans @RagnaIngolfs
— Hrafn Kristjánsson* (@ravenk72) December 1, 2020
Íþróttafólkið innan ykkar sambands þurfa virkilega á ykkur að halda núna. Leyfið okkur að heyra hvernig þið ætlið ykkur að taka frumkvæði í þessu ástandi og berjast fyrir hagsmunum okkar.
þeir er ntl ekki leyfðar alls staðar annar staðar en það er plan í gangi. Gríðarleg vonbrigði með ÍSÍ í þessu máli, þau gleyma því að þau eru sérfræðingarnir. Geta forgangsraðað íþróttum eftir áhættu og eftir aldri líka. Vonbrigði
— Thorlakur Arnason (@ThorlakurA) December 1, 2020