Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar, horfði út um eldhúsgluggann á heimili sínu í gærmorgun. Eiginkona hans, Vigdís Jónsdóttir, er fuglavinur mikill og setti hún út sérunnið kjötfars fyrir fuglana að gæða sér á.
Benedikt segir frá þessu í pistli í Morgunblaðinu í dag og er boðskapurinn nokkuð skýr. Um fuglana sem hann horfði á út um gluggann segir hann:
„Allt í einu kom fát á þá og þeir hörfuðu út í trjábeðið og vöfruðu þar um. „Kemur kötturinn,“ hugsaði ég, en kisi var hvergi nærri. Aftur á móti birtist stór svartþröstur á stéttinni. Hann gekk valdsmannslega stóran hring utan um máltíðina, stoppaði aðeins við beðið og smáfuglarnir hurfu lengra inn í runnana. Svo vappaði hann um stéttina, en virtist alls ekki vera svangur, heldur var bara að tryggja að hinir kæmust ekki í veisluna. Líklega er það eðli dýra og manna að skara eld að eigin köku,“ segir Benedikt sem bætir við að honum hafi alltaf fundist það óeðli hvað mörgum líður illa þegar aðrir ná árangri.
Hann vísar í orð bandaríska rithöfundarins Gore Vidal sem sagði eftirminnilega: „Í hvert skipti sem einhverjum vini mínum vegnar vel, deyr eitthvað inni í mér.“
Benedikt segir að þó að við brosum þegar við lesum þessi orð kannist eflaust margir við þessa hugsun – sumir telja jafnvel að hún gegnsýri samfélagið.
„Þegar einhver hagnast af eigin dugnaði og hugviti á frjálsum opnum markaði, ætti það að vera fagnaðarefni. Sá hinn sami er líklegur til þess að verja vel fengnu fé í umsvif sem leiða til velsældar annarra,“ segir Benedikt sem nefnir tvö dæmi af Íslendingum sem hafa gert þetta, Róbert Guðfinnsson sem hefur veitt verulegum fjárhæðum í uppbyggingu á Siglufirði og Harald Þorleifsson, sem seldi tölvurisanum Twitter fyrirtæki sitt á dögunum.
„Nú hefur verið tilkynnt að settir verði upp í Reykjavík 100 rampar fyrir fólk í hjólastólum í kjölfar söfnunarátaks sem Haraldur setti af stað og styrkti myndarlega. Margir njóta góðs af.“
Benedikt vísar í gömul spakmæli þess efnis að kommúnisminn komi óorði á sjálfan sig, en kapítalistar komi óorði á kapítalismann.
„Þessu kynntumst við vel hér á landi, þegar auðmenn ætluðu að sigra heiminn, settu Ísland að veði og töpuðu. Enn í dag sjáum við auðjöfra, sem vilja umfram allt sitja einir að kökum, sem þeir hafa komist yfir með umdeilanlegum hætti og helst klekkja á sama tíma á öllum öðrum. Fyrirsögn greinarinnar (Ég get sofið, þótt öðrum gangi vel) er höfð eftir Lofti Bjarnasyni útgerðarmanni, öðlingi sem er löngu dáinn,“ segir Benedikt sem endar grein sína á þessum orðum:
„Einu sinni mættu rithöfundarnir Kurt Vonnegut og Josep Heller (höfundur Catch 22, einnar vinsælustu bókar allra tíma) í boð hjá bandarískum milljarðamæringi. Kurt hallaði sér að félaga sínum og sagði: „Hvernig líður þér með það, að gestgjafi okkar græddi meira í gær, heldur en þú fékkst allt í allt fyrir Catch 22?“ Heller svaraði sallarólegur: „Ég hef eitt, sem hann eignast aldrei.“ „Hvað í ósköpunum gæti það verið?“, spurði Vonnegut. „Nóg,“ ansaði Heller. Líklega liði öllum betur, ef við hugsuðum oftar á þessa lund.“