Benedikt Bóas Hinriksson, blaðamaður á Fréttablaðinu og sjónvarpsmaður, fer hörðum orðum um íslenskt samfélag í bakþönkum í Fréttablaðinu í dag.
Vitnar hann til orða Guðmundar Guðmundssonar, landsliðsþjálfara í handbolta, sem sagði Íslendinga eins og molbúa vegna tafa á byggingu nýrrar þjóðarhallar fyrir innanhúsíþróttir. „En ótrúlegt en satt erum við Íslendingar eins og molbúar í alls konar,“ skrifar Benedikt.
„Ég eyddi páskunum í Tallinn, þar sem Bolt-appið er á heimavelli. Þar er hægt að panta mat, panta leigubíl, panta rafmagnsbíl og bara nefndu það. Hér á Molbúalandi eru alls um 200 leigubílar til að selflytja ferðamenn.“
Stjórnmálamenn þurfi að opna augun
Þá segir Benedikt heimamenn í Tallin nota bara almenningssamgöngur. „Enda fá þeir frítt um borð, hvort sem það er í sporvagn, lest eða strætó,“ skrifar Benedikt sem beinir spjótum sínum næst að bjór.
„Allir drekka lókal bjórinn í Tallinn. Annað hvort A le Coq eða Saku enda mun ódýrari. Maður getur auðvitað fengið sér alls konar á dælu en það er mun dýrara.Persónulega hef ég aldrei skilið af hverju íslenskur bjór er ekki ódýrari en sá erlendi. Það hlýtur að vera rökrétt og atvinnuskapandi að brugga meira af íslenskum bjór. Hann er nefnilega ansi góður.“
Þá segir Benedikt hægt að fá vín og bjór og sterkt vín meira að segja líka í búðum í Tallinn.
„Allir sem hafa farið úr Molbúalandi upplifa einfaldari tíma erlendis,“ skrifar Benedikt og bætir við að þjóðarhöll og þjóðarleikvangur hafi risið á þremur árum í Eistlandi.
„Stjórnmálamenn, bæði í ríki og borg þurfa að opna augun, og landið um leið, fyrir nýjum tímum, hvort sem öppin heita Uber, Lyft eða Bolt eða hvað sem er. Færa Molbúaland aðeins nær nútímanum.“