Benedikt Bóas, sparkspekingur og blaðamaður á Fréttablaðinu, gefur lítið fyrir kosningasjónvarp RÚV um nýliðna helgi. Hann skýtur föstum skotum að dagskránni í blaði dagsins.
Hann segir að um hafi verið að ræða fídusafyllerí. Kosningasjónvarpið hafi verið pínlegt á köflum þó það toppi vissulega ekki talningarruglið sem enn sér fyrir endann á.
„Ríkisstöðin stillti upp sínum helstu kanónum. Bogi Ágústsson, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, Rakel Þorbergsdóttir og Heiðar Örn Sigurfinnsson stýrðu rándýru prógramminu sem virtist þó ekki nógu stórt fyrir stjörnurnar og núningur þeirra í milli skilaði sér lóðbeint heim í stofu. Þrátt fyrir að kunna öll sporin fundu þau aldrei taktinn þótt þau væru ekki jafn illa áttuð og útsendingarstjórnin sem var á einhvers konar fídusafylleríi og klippti alltof seint á kosningavökur þegar tölur voru lesnar upp,“ skrifar Benedikt hvass.
Kjarvalsstofan galin ákvörðun
Þá gefur Benedikt afskaplega lítið fyrir hluta kosningavöku RÚV sem tekin var upp á Kjarvalsstofu í síðari hluta pistils síns sem heitir einfaldlega „Baldvin skemmtir sér.“
„Þaðan fengu sjónvarpsáhorfendur skemmtistað beint í æð með svo skelfilegu hljóði að
bakgrunnskliðurinn frá blindfullu fólki yfirgnæfði viðmælendur. RÚV greip enda á það ráð að taka bara upp frekar ódýra míkrófóna þegar leið á útsendinguna. Baldvin Bergsson stýrði veislunni og fílaði sig ágætlega í því hlutverki enda tókst honum greinilega miklum mun betur að skemmta sjálfum sér en talnaþyrstum áhorfendum,“ skrifar Benedikt.