Raunveruleikastjarnan og nú tónlistarmaðurinn Bassi Maraj vandaði Eddu Falak ekki kveðjurnar í hlaðvarpsþættinum Karlmennskan með Þorsteini V. Einarssyni.
Edda Falak vekur athygli á ummælum hans á Twitter og hefur Þorsteinn meðal annars brugðist við þeim. Í færslu sinni á Twitter segir Edda:
„Bassi Maraj í podcasti: “það þarf low key að chekka eddu falak, hun þarf að hætta að drulla yfir folk, mer finnst folk ekki nogu duglegt að kalla hana ut”
Edda birtir svo skjáskot af miður fallegum ummælum sem fólk hefur látið falla um hana, en hún var afar áberandi í tengslum við MeToo-byltinguna sem vakti mikla athygli fyrr í sumar. Hefur Edda fengið yfir sig allskonar óhróður en að sama skapi fengið mikið hrós fyrir baráttu sína. Ummæli Bassa koma því flatt upp á marga og þarf ekki annað en að skoða skjáskotin sem Edda birtir.
Þorsteinn, stjórnandi Karlmennskunnar, bregst við færslu Eddu og segist alls ekki deila skoðun Bassa.
„Til að hafa það á hreinu, þá tek ég ekki undir sjónarmið Bassa um að það þurfi að „chekka Eddu Falak” þó ég leyfi þeim orðum að standa í þættinum en reyni að pota í þau. Markmið spjallsins var að veita innsýn í líf, reynslu og viðhorf ungs áberandi homma,“ segir hann og bætir við að markmið hlaðvarpsins sé að varpa ljósi á og hreyfa við umræðu sem tengist karlmennsku og jafnrétti.
„Það er ekki bara gert með því að miðla „réttum” skoðunum og viðhorfum sérfræðinga. Margt sem Bassi segir kom mér á óvart, margt sem ég er persónulega ósammála og sumt sem ég veit ekki almennilega hvort hafi verið grín eða ekki. Eftir stendur þátturinn og kannski er niðurstaðan bara sú að það þarf að chekka Bassa aðeins betur.“
Hægt er að hlusta á þáttinn í öllum helstu hlaðvarpsveitum, til dæmis Spotify.
Bassi Maraj í podcasti: “það þarf low key að chekka eddu falak, hun þarf að hætta að drulla yfir folk, mer finnst folk ekki nogu duglegt að kalla hana ut”
— Edda Falak (@eddafalak) August 20, 2021
Fólk á netinu. alltaf. yfir öllu sem eg segi og geri: pic.twitter.com/SpWbiXGqZG
Til að hafa það á hreinu, þá tek ég ekki undir sjónarmið Bassa um að það þurfi að „chekka Eddu Falak” þó ég leyfi þeim orðum að standa í þættinum en reyni að pota í þau. Markmið spjallsins var að veita innsýn í líf, reynslu og viðhorf ungs áberandi homma. 1/ https://t.co/EtulOb5V84
— Þorsteinn V. (@idnadarmadurinn) August 20, 2021