Bassi Mara­j tók Bjarna Ben í bakaríið

Sam­fé­lags­miðla-og popp­stjarnan Bassi Mara­j tók Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, í bakaríið á sam­fé­lags­miðlinum Twitter í gær­kvöldi svo eftir var tekið.

Þar skrifaði Bassi, sem ný­verið gaf út eitt vin­sælasta lag ársins og hefur slegið í gegn í þáttunum Æði á Stöð 2+, að hann væri svo hug­mynda­ríkur að hann ætti að gera hug­myndir fyrir Sjálf­stæðis­flokkinn. Tístið birti Bassi um sex­leytið og rúmum fjórum tímum síðar svaraði Bjarni honum.

„Allar hug­myndir vel þegnar,“ skrifaði Bjarni og vakti tístið heil­mikla at­hygli. 200 manns brugðust við tístinu. Rúm­lega klukku­stund síðar svaraði Bassi Bjarna og það er ó­hætt að segja að hann hafi tekið hann í bakaríið.

„Hér er hug­mynd... hvar er nýja stjórna­skràinn? With ya dumb ass face you aint eating but i swear u got some bum ass ta­ste !? Og hvernig væri að redda mér reikning í panama with your scammin ass alla­vegana nota peninginn sem þú ert að scama i að kaupa handa mer bur­kin,“ skrifar Bassi og lætur bros­kall fylgja.

Rúm­lega 700 manns brugðust við tísti Bassa og sló það að því er virðist í gegn á for­ritinu. Hann lét stuttu síðar annað fylgja hinu í svari til Bjarna: „Og loka landinu gleymdu þessum Reykja­vík excursions tourist mon­ey ya­bish.“

Ó­hætt er að segja að svör Bassa séu um­töluð. Einn net­verja skrifar: „Bassa Mara­j tókst að sinna öflugri stjórnar­and­stöðu á korteri en fimm stjórn­mála­flokkum í stjórnar­and­stöðu á heilu kjör­tíma­bili.“