Matvara á Íslandi er miklu dýrari á Íslandi en í nágrannalöndum okkar. Þetta er samkvæmt áhugaverðum niðurstöðum verðsamanburðar Veritabus og birtar eru í Fréttablaðinu í dag.
Verð á mat hefur hækkað töluvert hér á landi að undanförnu og nemur hækkunin til dæmis 5,7 prósentum hjá Krónunni síðan í september og 5,5 prósentum hjá Hagkaup.
Veritabus kannaði verð á matvöru hjá Tesco í Bretlandi, ICA í Svíþjóð og Franprix í Frakklandi en um er að ræða öflugar verslanakeðjur í sínum heimalöndum sem eru sambærilegar hvað varðar vöruúrval og þjónustu við þær íslensku.
Gerð var vörukarfa þar sem notaðar voru vörur sem meðalfjölskylda hér á landi myndi kaupa til að endast út vikuna. Vörurnar sem urðu fyrir valinu voru 35 talsins.
Samkvæmt könnuninni var karfan í Krónunni, sem var sú verslun sem hafði lægsta verð á Íslandi, 53 prósent dýrari en hjá Tesco í Bretlandi, 12 prósent dýrari en ICA í Svíþjóð og 25 prósent dýrari en hjá Franprix í Frakklandi.
Tekið er fram að mismunandi virðisaukaskattsþrep eru í þessum löndum og þegar tekið var tillit til þess hækkaði karfan eilítið í Bretlandi og Frakklandi en lækkaði enn frekar í Svíþjóð. Ástæðan er sú að virðisaukaskattur á Íslandi er hærri en í Bretlandi og Frakklandi en lítið eitt lægri en í Svíþjóð.
Tekið er fram í frétt Fréttablaðsins að mjólkurvörur hér á landi séu 65 prósent dýrari en í Bretlandi. Þá er meira en 100 prósent munur er á verði grænmetis og ávaxta og einnig munar mjög miklu á brauði og kornvörum.