Bardagatækni ólafs hittir hann sjálfan

Hermt hefur verið að högg undir belti sæmi engum og komi slík bardagatækni stundum í koll þeirra síðar sem slíka árásartækni viðhafa.

Það hlýtur að mega kalla það kaldhæðnislegt að sú tækni sem Ólafur Ragnar Grímsson beitti þegar hann réðist á maka Þóru Arnórs fyrir fjórum árum sé að hitta hann sjálfan fyrir núna.

Munurinn er þó sá að sakir Svavars Halldórssonar, eiginmanns Þóru, voru þær einar samkvæmt orðum Ólafs Ragnars í frægu Sprengisandsviðtali að hafa beitt óeðlilegum fréttaflutningi og meiðandi fyrir forsetann um svipað leyti og könnun var gerð um fylgi við forsetaefni.

En nú er maki forsetans Ólafs í Panamaskjölunum.

Mestöll umræðan þessa dagana hverfist um þátt maka Ólafs Ragnars - líkt og mestöll umræðan fyrir fjórum árum hverfðist um maka Þóru Arnórsdóttur.

Sá er þó munurinn að Þóra Arnórsdóttir startaði ekki umræðu um maka forsetans nú. Ólafur Ragnar er eini forsetinn sem hefur hjólað í maka forsetaefnis svo eftir var tekið.

Nú bíður hans að verja sinn eigin maka, sinn eigin stól, sína eigin framtíð.

Björn Þorláksson