Bára Halldórsdóttir, aðgerðasinni og uppljóstrari í Klausturmálinu svokallaða, segist hafa lent í rifrildum við konu sem var grímulaus í þröngu apóteki.
Bára leggur orð í belg við færslu Töru Margrétar Vilhjálmsdóttur, formanns Samtaka um líkamsvirðingu, sem gagnrýndi orðræðuna í tengslum við Covid-19 harðlega á Twitter-síðu sinni.
Færsla Töru var svona:
„Þið sem dismissið dauðsföll og innlagnir á þeim forsendum að viðkomandi hafi verið gamall/með undirliggjandi sjúkdóma...hvað í fokkanum er að ykkur?! Ég er hætt að vera meðvirk með þessu og mun héreftir svara fullum hálsi: "þannig að viðkomandi skiptir þá engu máli eða?"“
Bára svaraði færslunni með eigin reynslusögu og miðað við frásögn hennar er ljóst að það eru ekki allir í sama liðinu.
„Reifst við konu um að hún var grímulaus í þröngu apóteki. Hún: það eru nú bara langveikir og gamlir sem deyja þannig að þetta er allt í lagi. Ég: já ég er einmitt langveik í áhættuhópi. Hún: já en það eru bara langveikir osvfrv. 5 hringi allavega. Horfir í augun á mér brosandi.“
Reifst við konu um að hún var grímulaus í þröngu apóteki. Hún: það eru nú bara langveikir og gamlir sem deyja þannig að þetta er allt í lagi. Ég: já ég er einmitt langveik í áhættuhópi. Hún: já en það eru bara langveikir osvfrv. 5 hringi allavega. Horfir í augun á mér brosandi.
— Bára Halldórsdóttir #blacklivesmatter (@bee_how) January 9, 2022