Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, segir Namibíumennina sem funduðu með honum að hans sögn í einkaerindum um Samherjamálið hafa „bankað upp á sísvona.“
Fréttablaðið greindi frá því í morgun að namibíska utanríkissamskipta-og samvinnuráðuneytið hafi ekki viljað kvitta upp á skýringar Brynjars um að fundur sem hann hafi átt með namibískum embættismönnum þann 7. júní hafi verið í einkaerindum.
Brynjar haggast hinsvegar ekki í svörum sínum um fundinn og ræðir við Vísi um málið. Þar segir Brynjar þingmenn Samfylkingarinnar reyna að þyrla upp moldviðri út af engu.
Brynjar segir embættismennina hafa verið hér á landi í nokkra daga, heimsótt helstu ferðamannastaði án þess að nokkur hafi vitað og svo bankað upp á hjá Katrínu Jakobsdóttur sem hafi bent á Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra.
Hann hafi ekki verið viðlátinn og þau þegið að funda með Brynjari, aðstoðarmanni hans. „Ég sagði ekki að ég hafi fundað með þessu fólki í einkaerindum heldur sagði að mig minnir að þetta fólk hafi ekki verið hér á landi í embættiserindum enda bara bankað upp á sísvona og enginn vissi af þeim,“ segir Brynjar við Vísi.
Spurður að því hvort þetta hafi verið villuráfandi sauðir segir Brynjar: „„Skal ekki segja en þetta var mjög furðuleg framkvæmd. Það er eiginlega ómögulegt fyrir mig að segja hvort þetta fólk var í einkaerindum eða embættiserindum. Það væri kannski best að spyrja það sjálft.“