Ef marka má umfjöllun Andrésar Magnússonar, blaðamanns Morgunblaðsins, í Morgunblaðinu í dag er íslenskum stjórnvöldum ekki kunnugt um hvaða Íslendingar eru á bannlista Rússa sem vakið hefur talsverða athygli.
Um helgina var greint frá því að níu Íslendingar væru á listanum sem þýðir að þeir mega ekki ferðast til Rússlands. Rússar hafa ekkert gefið upp um nöfnin en þó hefur komið fram að á listanum séu þingmenn, ráðherrar, fólk úr viðskiptalífi, menntaheiminum og fjölmiðlum.
Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að nokkuð hafi verið bollalagt um hverjir það eru sem eru á listanum og er haft eftir embættismanni úr utanríkisráðuneytinu að nokkur fjöldi komi til greina.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er efst á blaði hvað ráðherra varðar enda utanríkisráðherra Íslands. Fastafulltrúar Íslands hjá NATO er einnig nefndir, þeir Hermann Örn Ingólfsson sendiherra og Garðar Forberg sem situr í hermálanefnd.
Fleiri eru nefndir til sögunnar, til dæmis Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, þingmaðurinn Bjarni Jónsson sem er formaður utanríkismálanefndar og þingmennirnir Njáll Trausti Friðbertsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri séu líklegur kandídat á listann sem og Ólafur Þ. Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor er einnig nefndur sem og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Fréttablaðsins.
Það skal undirstrikað að þetta eru aðeins vangaveltur því ekkert hefur verið gefið upp um það hverjir eru á lista Rússa.